Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 7. maí 2009

Sendur aðra hvora viku

til 911 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýtt vín | Vef-fréttir | Uppskrift dagsins | Veitingastaðir | Myndbönd mánaðarins

NÝTT VÍN
Ódýrt Verdicchio hvítvín frá Umani Ronchi

Einkennisþrúga vínframleiðandans Umani Ronchi í Le Marche héraði á Ítalíu er án efa hvítvínsþrúgan Verdicchio. Úr Verdicchio þrúgunni gerir Umani Ronchi nokkur vín í mismunandi verðflokkum og höfum við frá upphafi flutt inn eitt þeirra, gæðahvítvínið Casal di Serra.

Við höfum ekki talið ástæðu til að flytja inn ódýrasta Verdicchio hvítvínið frá framleiðandanum einfaldlega vegna þess að Casal di Serra hefur alltaf verið svo góð kaup. Casal di Serra stendur enn fyrir sínu en vegna gengislækkunarinnar hefur verðmiðinn á því hækkað verulega og því finnst okkur ástæða til að leita í ódýrari útgáfuna af þessu vinsæla hvítvíni.

Verdicchio 2008 er létt og þægilegt hvítvín, fyrirtak í sumarið sem framundan er. Áfengismagnið er líka ekki nema 12% svo það hentar vel til almenns söturs, fyrir mat eða með léttari pastaréttum, grænmeti og fiski.

Fyrir áhugasama má benda á það að langi titill vínsins, Verdicchio dei Castelli di Jesi, þýðir einfaldlega það að vínið í flöskunni er búið til úr Verdicchio þrúgum sem eru ræktaðar í hæðunum í kringum bæinn Jesi.

Verdicchio 2008 kostar 1.691 kr. og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Lestu um framleiðandann Umani Ronchi »

Vef-fréttir
Af landvinningum og túbuveiðum

Um eitt hundrað sjálfboðaliðar hafa undanfarnar vikur hannað landakort yfir vínframleiðendur okkar.

Kortin höfum við síðan sett inn á síðu framleiðendanna á vefnum okkar svo nú er hægt að sjá nákvæmlega hvar hver vínframleiðandi býr, jafnvel upp á fersentimeter.

Í leiðinni erum við taka saman túbur sem við finnum á youtube eða höfum búið til sjálf sem tengjast framleiðendum okkar með einhverjum hætti og sett þær inn á síðurnar þeirra líka.

Vonandi skemmtið ykkur vel.

Landakortin má líka nálgast beint á kortavef Google móðurtölvunnar; skoðaðu vínframleiðendur á Ítalíu, vínframleiðendur í Frakklandi og vínframleiðendur í Ástralíu.

Allar okkar túbur á YouTube »

UPPSKRIFT DAGSINS
Lasagna hússins

Ef það er einhver réttur sem bloggarinn borðar ítrekað yfir sig af á heimilinu er það lasagna.

Það er eitthvað við þennan rétt sem gerir hann svona ómótstæðilegan; bráðnaður parmeggiano osturinn, bechamela sósan, kjötið, tómatsósan.

Okkar uppskrift er svo sem ekkert í líkingu við orginalinn, ekkert frekar en uppskriftin hennar Rachael Ray en hún er ansi góð.

Hér má lesa um Lasagna á Wikipedia

Uppskriftin af lasagna hússins »

VEITINGASTAÐIR
Lucien Le Moine á helstu vínseðlum

Það er væntanlega til lítils að benda lesendum á að vínin frá Lucien Le Moine eru fáanleg á 9 af 12 bestu veitingahúsum heims að mati Restaurant Magazine.

Ekki líklegt að margir Íslendingar séu að borða þar á næstunni.

En — það má benda á þessa ánægjulegu staðreynd til staðfestingar hversu góð vínin eru vegna þess að það eru ekki öll vín sem detta inn á radar eins margra sprenglærðra vínþjóna og -þefara sem velja vín inn á þessa ágætu staði.

Kíktu á bloggið til að sjá hvaða 9 veitingastaðir þetta eru

Það mætti ætla að Lucien Le Moine fyrirtækið hafi áunnið sér þennan sess með þrotlausu markaðsstarfi en svo er ekki; hjónin eru bara tvö í fullu starfi og hafa um eitthvað allt annað að hugsa, eins og að búa til vín.

Vínin tala fyrir sig sjálf.

Hér má skoða listann yfir 50 bestu veitingastaði heims »

MYNDBÖND MÁNAÐARINS
Nokkrir DVD sem er hægt að borða

Um tíma þegar heimilið var með BBC Food í áskrift datt bloggarinn ítrekað inn í ákveðna tegund af sjónvarpsþáttum. Þessir þættir voru ekki hefðbundir uppskriftaþættir með prúðbúnum sjónvarpskokki í myndveri heldur lögðu þeir mikið upp úr hráefninu sjálfu. Þáttastjórnandinn fór út á ekrurnar, niður í fjöru, sigldi á bátum, rölti inn á markaðinn, kíkti í sláturhúsið — hvert sem gott, staðbundið hráefni var að finna og eldaði upp úr því á staðnum.

Öllu þessu var miðlað af mikilli ástráðu og stundum slatta af breskum húmor hjá köppum eins og Keith Floyd, sem yfirleitt eldar með vínglas í annarri hendinni, og hinum stóískari Rick Stein. Keith er öllu hrárri en Rick fágaðri, hvor með sína kosti.

Við vorum að fá inn um lúguna nokkra DVD með köppunum tveimur í boði Amazon:

Rick Stein Food Heroes (mjög áhugaverð sería þar sem Rick ferðast um Bretland og notar staðbundið hráefni)

The Keith Floyd Cookery Collection - Floyd Around The Med (miðjarðarhafs matargerð)

The Keith Floyd Cookery Collection - Floyd On Italy (matur, vín og menning Ítalíu)

The Keith Floyd Cookery Collection - Floyd Uncorked (Keith ferðast um vínekrur Frakklands í þessari seríu)

Keith Floyd frá a til ö á Amazon »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Flöskumiði vikunnar

Loksins er sendingin af Sine Qua Non vínum komin til landsins.

Tvær rauðvínstegundir með sex ólíkum flöskumiðum og síðan kassi af rósavíni sem hefur ekki verið auglýst áður enda upplagið svo takmarkað.

Flöskumiðar Raven rauðvínanna eru gríðarlega flottir og ekki er rósavínið Starts and Stripes síðra en þá má alla skoða hér á flickr síðunni okkar.

Meira um Sine Qua Non »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Slow Food Reykjavík - Málþing næsta laugardag í Norræna húsinu

Við skráðum okkur í Slow Food samtökin nýlega. Þau voru stofnuð á Ítalíu en eru orðin alþjóðleg og felast m.a. í því að stuðla að bættri matarmenningu í víðu samhengi.

Næsta laugardag, 9. maí kl. 14.00 til 17.00, verður fundur í Norræna húsinu þar sem fjallað verður sérstaklega um svæðisbundna matarmenningu á Íslandi.

Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu samtakanna: "Með málþinginu viljum við efla vitund og kynna hvaða tækifæri felast í sölu matvöru beint frá bónda til neytanda og jafnframt hvetja til þess að hægt veri að rekja vörur í verslunum og á veitingahúsum beint til framleiðanda".

Hægt verður að smakka íslenskt góðgæti á staðnum.

Slow Food samtökin

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.