Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 18. september 2008

Sendur aðra hvora viku
til 689 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Pecorino er nýtt hvítvín frá Umani Ronchi, Sérpöntun: Búrgúnd 2006 og Vínkeðjan: andans maður og Una húskerling smakka Anima Umbra

Pecorino er nýtt hvítvín frá Umani Ronchi — fyrir menn og rollur

Við höldum áfram að kynna ný vín frá Ítalíu.

Það er ástæða til að taka fram áður en lengra er haldið að vínið sem við fjöllum um núna, eins og flest önnur ný vín, fæst aðeins í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og það er því til lítils að renna í aðrar Vínbúðir og krefjast þess að fá það keypt.

Að þessu sinni fjöllum við um nýtt hvítvín frá framleiðandanum Umani Ronchi, Pecorino, en eins og margir vita framleiðir hann einnig hvítvínið Casal di Serra, sem er líklegast vinsælasta vínið okkar frá upphafi.

Það er áhugavert að bera saman þessi tvö hvítvín því þau eru all ólík. Casal di Serra úr Verdicchio þrúgunni er nokkuð feitt með suðrænum ávaxtatónum og hefur gylltan lit en Pecorino úr samnefndri þrúgu er piprað, steinefnaríkt með bjartari ávexti og nánast glært að lit. Gæðalega eru þau svipuð, þetta er spurning stíl.

Mmmmmeeeeeeeeeeeeee ...

Nafn Pecorino þrúgunnar er dregið af sauðkindinni ítölsku (pecora) en sagan segir að þrúgan sé í uppáhaldi hjá kindum. Við ábyrgjumst þó ekki hvað gæti gerst ef þú reyndir að gefa rollunni þinni þetta vín. Margir kannast líka eflaust við frægan, ítalskan ost með sama nafni, pecorino.

Smelltu hér til að lesa meira um Pecorino þrúguna

Pecorino er fyrsta hvítvínið sem við flytjum inn frá hinu suðlæga Abruzzo héraði en Umani Ronchi víngerðin á vínekrur bæði í Abruzzo og í heimahéraðinu Le Marche.

Pecorino 2007 kostar 1.980 kr. og fæst eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og á veitingastaðnum La Primavera.

Með Pecorino mælum við með léttum réttum, pasta, skelfiski og þess háttar eða góðum salötum eins og eplasalati með parmaskinu.

Kíktu á nýja vefsíðu hjá framleiðandanum Umani Ronchi »

Sérpöntun: Búrgúnd 2006

Þau eru ekki enn komin til landsins en við erum þegar farin að taka pantanir.

Framleiðendurnir frá Búrgúnd eru fjórir sem fyrr, Lucien Le Moine, Jean Grivot, Vincent Girardin og Christian Moreau.

Nú er það 2006 árgangur sem er væntanlegur.

Smelltu hér til að skoða lista yfir 2006 vínin sem eru væntanleg frá Búrgúnd

Flest vín úr fyrri sendingum frá Búrgúnd (árgangar 2004 og 2005) seldust upp með hraði. Nokkur vín úr 2006 sendingunni (sjá listann fyrir ofan) eru þegar upppöntuð.

2006 rauðvínin einkennast af fágun og fínleika sem gerir þau afskaplega heillandi. Þau eru jafnframt opin og aðgengileg nú þegar en geta líka geymst. 2006 hvítvínin eru almennt talin afar vel heppnuð, af svipuðum gæðum og hvítvínin frá 2005.

Sendu okkur tölvupóst til að láta taka frá fyrir þig Búrgúndavín frá 2006 eða til þess að óska eftir að fá listann á excel skjali.

2006 Búrgúndarvínin eru væntanleg um miðjan október.

Kíktu á myndir frá heimsókn til Búrgúnd í fyrra »

Vínkeðjan: Valinkunnur andans maður og húskerlingin Una smakka Anima Umbra

Vínkeðjan skoppar áfram og lendir að þessu sinni hjá bloggaranum og andans manninum Önundi.

Honum til aðstoðar við smakkið var húskerlingin Una.

Lestu hvað þeim finnst um Anima Umbra

Óttar Völundarson tekur við keðjunni og hefur fengið í hendur eintak af sama víni, Anima Umbra.

Hann mun blogga um það á næstunni. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá.

Til að rifja aðeins upp reglurnar þá virkar vínkeðjan þannig að við látum bloggara fá vín sem hann bloggar um með sínu nefi án nokkurra afskipta frá okkur — og tilnefnir í leiðinni næsta bloggara til að halda áfram með keðjuna.

Lestu allt um vínkeðjuna »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum skaltu ekki vera hræddur, þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Vínframleiðandi vikunnar

Nýjasti framleiðandinn okkar er Lini fjölskyldan. Hún framleiðir alvöru Lambrusco auk skemmtilegs freyðvíns úr Moscato þrúgunni sem fást í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.

Vínin frá Lini hafa lægra áfengismagn en flest hefðbundin vín og því þægileg til almenns brúks.

Meira um Lini »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Nú er Vínskólinn að fara á fullt eftir sumarfrí og margt spennandi í boði, námskeið og ferðalög.

Skoðaðu dagskránna fram að jólum.

Meira á vinskolinn.is

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst og spurði hvar mætti finna uppskriftirnar okkar á netinu.

Okkar svar: Flestar uppskriftir sem við höfum gefið er að finna á blogginu okkar ásamt tenglum á aðrar vefsíður og bloggara sem fjalla um mat og vín.

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.