Vín & matur

Vínpósturinn, 4. október 2007

Le Moine Bourgogne 2004
Vínkeðjan — Don Pedro bloggar um The Footbolt
Ein grein og tvær sögur í The New Yorker
Nýr árgangur — Casal di Serra 2006

Le Moine Bourgogne 2004

Allir vegir liggja til Búrgúnd. Og þangað ætlar undirritaður að keyra í lok mánaðarins til að heimsækja m.a. framleiðandann okkar Lucien Le Moine.

Lestu um vínin frá Búrgúnd sem við fluttum inn í fyrsta sinn í sumar.

Það sem við minntumst ekki á áður er að í sendingunni voru líka tvö ódýrari vín, rautt og hvítt. Þessi tvö vín eru hvorki 1er Cru né Grand Cru eins og öll önnur vín frá Lucien Le Moine, né eru þau skírð eftir ákveðnu þorpi heldur kallast þau einfaldlega Bourgogne eftir héraðinu þaðan sem þau koma.

En í höndunum á Mounir, eiganda Lucien Le Moine, verða jafnvel óbreyttir Búrgúndarar að hinum mestu gæðingum.

Við eigum sáralítið af þessum vínum, þó aðeins meira heldur en af stóryrkjum framleiðandans sem við auglýstum í sumar (og eru að mestu uppseld). 3-4 kassa af hvoru hér um bil.

Lucien Le Moine Bourgogne Blanc 2004 og Bourgogne Rouge 2004 kosta bæði 2.690 kr og fást einungis með sérpöntun.

Hið fyrra úr Chardonnay þrúgunni og það seinna úr Pinot Noir.

Svaraðu þessum pósti eða sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@internet.is ef þú vilt sérpanta þessi vín (ath. kennitala þarf að fylgja pöntun).

Þau eru góður inngangur inn í vínheima Bourgogne héraðsins.

Lestu meira um Lucien Le Moine á heimasíðu þeirra

Lestu líka bloggið um Lucien Le Moine í nýjustu pressunni

Áttu vin sem þér þykir vænt um?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Vínkeðjan — Don Pedro bloggar um The Footbolt

Don Pedro bloggaði áður um The Footbolt en lenti þá á skemmdri flösku.

Taka tvö.

Við gáfum honum aðra og nú kveður við annan tón.

Lestu hvað honum finnst núna um The Footbolt

Ein grein og tvær sögur í The New Yorker

Lestu um ítalskar ólífuolíur sem eru ekki ítalskar (smelltu hér) og tvær fyndnar sögur (smelltu hér) sem við lásum nýlega í uppáhalds tímaritinu okkar, The New Yorker.

Nýr árgangur — Casal di Serra 2006

Við viðurkennum það.

Öll eru þau jöfn en okkur þykir samt sérstaklega vænt um hvítvínið Casal di Serra.

Nýi árgangurinn er að okkar mati sá besti hingað til. Dæmigerður — en þykkari, dýpri og ennþá meira heillandi en vanalega.

 

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.