Vín & matur

Vínpósturinn, 19. október 2006

Elisabetta Foradori hlýtur óskarinn
Vín vikunnar: Foradori 2003
Uppskerufréttir frá Chateau du Lascaux
La Spinetta fær 30 sinnum þrjú glös

Og óskarinn hlýtur: Elisabetta Foradori

Elisabetta Foradori er besti framleiðandi Ítalíu árið 2006 að mati ítölsku vínþjónasamtakanna. Oscar del vino heita verðlaunin sem þau veita á hverju ári.

Hin einstæða, fertuga Elisabetta Foradori rekur fyrirtækið og býr til vínin þess á milli sem hún elur upp börnin fjögur og stundar útivist. Vínekrur Elisabettu eru í dalnum umkringdum sjálfum Ölpunum, nema til suðurs þangað sem Adige áin flæðir.

Við heimsóttum Foradori fyrir ári síðan. Elisabetta var sjálf á ferðalegi en við settumst niður með Tiziönu og smökkuðum vínin. Það eru bara þrjú vín framleidd undir Foradori nafninu: Foradori, hvítvínið Myrto og ofurvínið Granato sem hlýtur hin eftirsóttu Tre Bicchieri hjá Gambero Rosso á hverju einasta ári. Við skoðuðum víngerðina og vínekrurnar og dáðumst að því hversu nostursamlega og fallega var staðið að öllum verkum, allt frá vinnuumhverfi til vínframleiðslu.

Elisabetta er ástríðumanneskja sem sést kannski gleggst á því að hún leggur allt sitt traust á þrúgu sem nánast enginn þekkir, Teroldego, og þarf því aukakraft til að sannfæra mann og annan um ágæti hennar.

Hún þurfti reyndar ekkert að sannfæra okkur Rakel. Við fundum Foradori vínið hennar fyrst á vínbar í Flórens og dáðumst að sérstæðum og heillandi eiginleikum þess. Eiginleikum sem einmitt má rekja beint til Teroldego þrúgunnar og til þeirra vönduðu meðhöndlunar sem hún hlýtur í höndum Elisabettu.

Óskarinn á hún skilið.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Foradori 2003

2002 árgangurinn af Foradori úr Teroldego þrúgunni var valið Vín mánaðarins í Gestgjafanum hér einu sinni.

2003 árgangurinn er talsvert betri, dekkri á lit, safaríkari, mýkri en um leið aðgengilegri. Vínið er allt í senn glæsilegt, lokkandi og sveitalegt.

Ilmurinn er lokkandi. Þroskaðir ávextir, granatepli, sæt eik og glýserín. Minnir mig á Barolo þótt þrúgan sé allt önnur.

Byggingin er glæsileg, allt frá safaríkum tannínum til silkimjúkrar áferðarinnar.

Eftirbragðið er sveitalegt og endingin afar löng í munni. Ítölsk sveit er falleg.

Foradori 2003 fæst í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.950 kr.

 

Uppskerufréttir frá Chateau de Lascaux

Chateau de Lascaux í Languedoc héraði S-Frakklands sendi okkur fróðlega skýrslu um nýafstaðna 2006 uppskeruna.

Lestu meira um það á blogginu

La Spinetta fær 30 sinnum þrjú glös

Bestu vín Ítalíu fá 3 glös, TRE BICCHIERI, á hverju ári í Gambero Rosso. Þegar framleiðandi hefur fengið alls 10 slíkar viðurkenningar fær hann eina stjörnu í hattinn, 2 stjörnur þegar hann nær 20 o.s.frv.

Aðeins tveir framleiðendur á Ítalíu hafa fengið 3 glösin eftirsóttu alls 30 sinnum.

Fyrstur var Gaja.

Annar var La Spinetta.

Meira um það á blogginu

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.