Vín & matur

Vínpósturinn, 6. desember

Vernaccia di San Gimignano
Ný, mögnuð sérvín
Sérpöntun — Er Montevetrano 2005 besta vín Ítalíu?
Tilboðsvín í Vínbúðunum yfir hátíðarnar

Vernaccia di San Gimignano

San Gimignano er dæmigerður, fallegur Toskana-bær. Hann trónir á toppi hæðar með vel varðveittar miðaldabygginar og tilheyrandi þröngar götur. Það sem gerir hann sérstakan, og að einhverjum mest sótta ferðamannabæ héraðsins, eru turnarnir sem hvergi annars staðar á Ítalíu eru jafn margir og heilir í svo litlum bæ. San Gimignano er "litla Manhattan" Ítalíu.

Eða væri réttara að segja að Manhattan sé "San Gimignano" Bandaríkjanna?

Turnarnir voru merki um mátt fjölskyldna sem þar bjuggu og komu sér vel í nágrannaerjum. Sem dæmi voru um 200 slíkir í Flórens á miðöldum þegar fjölskyldustríðin stóðu sem hæst en voru flestir rifnir til að byggja múra borgarinnar þegar ógnin kom frekar frá nágrannaborgum eins og Siena.

Lestu meira um bæinn San Gimignano og skoðaðu myndir af honum á flickr

Hvítvínið sem kennt er við bæinn heitir Vernaccia di San Gimignano og er merkilegt fyrir þær sakir að það var fyrsta ítalska hvítvínið til að hljóta D.O.C. gæðastimpilinn. Það var árið 1966. Saga þess liggur mun lengra aftur í tímanna, Dante nefnir það í Guðdómlega gamanleiknum (Inferno). Það var árið 1310.

Vernaccia di San Gimignano 2006 frá Castello di Querceto er dæmigert fyrir svæðið. Létt, ljúft og þægilegt að drekka — það hefur þennan eftirsóknarverða eiginleika að getað fallið að ólíkum smekk margra. Hentar vel með pasta, grænmeti og fiski.

Kostar 1.390 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni en fæst líka á La Primavera.

Áttu góðan vin sem hefur komið til San Gimignano?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Ný, mögnuð vín á sérlistanum

Sérvín Vínbúðanna eru engin venjuleg vín.

Þau eru ekki tekin inn eftir sjálfvirku kerfi eins og önnur vín heldur er val þeirra byggt á vínsmökkun og gæðamati fagmanna Vínbúðanna og komast færri að en vilja.

Við vorum að fá nokkra nýja gæðinga á þennan góða hóp sérvína.

Súpertoskaninn Flaccianello 2004 (4.700 kr.) frá Fontodi hefur til þessa eingöngu verið fáanlegur á veitingahúsinu La Primavera en nú er hægt að nálgast það í hillum Vínbúðanna og mælum við sérstaklega með því með lamba- og nautakjöti. Þessi árgangur er með þeim betri síðustu ár og var nýlega valinn á Top 100 lista Wine Spectator sem gefur víninu 95 stig . Collepiano 2004 (4.300 kr.) frá Arnaldo Caprai er úr hinni dökku, þykku og kyngimögnuðu þrúgu Sagrantino en framleiðandinn hefur verið valinn Besti framleiðandi ársins á ítalíu af Gambero Rosso . Svo gott að villibráðin mun næstum falla í skuggann en passar vel með lambi og kjöti sömuleiðis. Frá Búrgúnd eigum við tvö ný sérvín, hvítvínið Chablis Grand Cru Les Clos 2004 (4.290 kr.) frá Domaine Christian Moreau og rauðvínið Nuits Saint Georges Les Charmois 2004 (4.200 kr.) en báðir framleiðendurnir eru á Búrgúnd top 10 lista Clive Coates yfir bestu framleiðendur héraðsins. Vín sem bæði hefja jafnvel bestu kalkúnmáltíðir til skýjanna, hvort á sinn hátt. og hið fyrrnefnda fer jafnframt vel með humar og betri fiskrréttum. Annað franskt vín er lífræna sveitaprinsessan Mas de Gourgonnier 2003 (1.790 kr.) sem fæst nú aftur í Vínbúðunum. Einstaklega karaktermikið vín sem fær 19/20 stig í Morgunblaðinu. Svo er það eitt sætvín sem sömuleiðis hefur fengist áður en snýr nú aftur, í þetta sinn sem sérvín (its back and now packing an uzi), Vin santo (2.100 kr.) frá Castello di Querceto sem bjargar og breytir öllu sælgætis- og smákökuáti í heilaga nautnastund.

Þessi vín bætast í hóp þeirra sérvína sem við áttum fyrir í Vínbúðunum: The Struie (3.890 kr.) frá Torbreck, Bandol (2.890 kr.) frá Domaine Tempier, Montiano frá Falesco (næstum uppselt), St. Valentin Sauvignon Blanc (2.890 kr.) frá San Michele Appiano og Barolo Le Vigne (7.400 kr.) frá Luciano Sandrone.

Sérvínin fást í öllum stærri Vínbúðum; a.m.k. í Heiðrúnu, Kringlunni, Smáralind, Eiðistorgi, Hafnarfirði og á Akureyri. Nokkur fást jafnvel víðar.

Sérpöntun — Montevetrano 2005

Það er kannski ekki frásögu færandi þótt einn af virtustu víngagnrýnendum Ítalíu velji ákveðið vín sem eitt af bestu vínum ársins.

Það er hins vegar frásögu færandi þegar ALLIR fimm helstu víngagnrýnendur Ítalíu velja ákveðið vín sem eitt af bestu vínum ársins á Ítalíu.

Því þótt góðu vínin séu mörg eru ekki nema fá sem allir eru sammála um að séu meðal þeirra bestu.

Reyndar eru þau bara tvö, ítölsku vínin sem gagnrýnendurnir fimm eru sammála um að séu meðal bestu vína Ítalíu.

Lestu meira

Annað þeirra er rauðvínið okkar frá Campania héraði, Montevetrano 2005.

Sassicaia suðursins segja sumir.

Betra segja aðrir.

Montevetrano 2005 kostar 5.600 kr. og fæst eingöngu með sérpöntun. Þú sendir okkur nafn, kennitölu og magn og við sendum pöntunina í Vínbúðina þangað sem þú sækir hana.

Aðeins 36 flöskur.

 

Tilboðsvín í Vínbúðunum yfir hátíðarnar

Eins og vanalega eru hátíðarvíndagar í Vínbúðunum í desember.

Þá fá ákveðin vín sérmerkingu í hillunni og gefið til kynna með hvaða hátíðarmat þau henta best.

Við tilnefnum 5 vín á listann í ár.

Þau eru með smávegis afslætti yfir hátíðarnar.

Kíktu á listann hér

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.