Vín & matur

Vínpósturinn, 24. maí 2007

Amedei hjá Sandholt
Vínkeðjan — Guðmundur bloggar um The Footbolt
Tvö ítölsk fá fína dóma í Gestgjafanum
Gestablogg — Sigurjón fjallar um heimsókn á MR í Köben

Amedei súkkulaði hjá Sandholt

Amedei súkkulaði er nú aftur fáanlegt í Sandholt bakaríinu á Laugaveginum.

Þarna fást nokkrar tegundir sem ég hef þegar kynnt á póstlistanum áður eins og 70% súkkulaði, 66%, mjólkursúkkulaði, hvítt súkkulaði með pistasíum, dökkt súkkulaði með ávaxtakurli og 70% einnarekrusúkkulaðið Chuao.

Nýtt í broddi fylkingar er splúnkunýtt súkkulaði frá Amedei súkkulaðismiðjunni og hið fyrsta sem fer yfir 70%. Súkkulaðið ber heitið "9" sem er skírskotun í þær 9 ólíku kakóekrur sem búa til þessa blöndu af 75% súkkulaði.

Þetta bragðmikla 75% súkkulaði hefur þessa silkimjúku áferð sem einkennir dökku súkkulaðin frá Amedei og er þess vegna hvorki of sterkt né of biturt heldur mjúkt og gómsætt.

Nú er líka hægt að kaupa 70% verðlaunasúkkulaðið frá Amedei í 1kg blokkum í Sandholt bakaríi á hagstæðu verði. Að eiga eitt slíkt stykki við höndina í eldhúsinu fær þig til þess að endurmeta hlutverk súkkulaðis í lífi þínu.

Að lokum mæli ég með því að þú prófir konfektmolana hans Ásgeirs Sandholts sem eru í sérflokki — vandaðir og ljúffengir.

Áttu vin sem borðar súkkulaði?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Vínkeðjan — Guðmundur bloggar um The Footbolt

Guðmundur fjallaði mjög skemmtilega um keðjuvínið The Footbolt fyrir skömmu.

Hann skrifaði bæði tilgerðarlega og tilgerðarlausa umfjöllun um vínið.

Lestu hvað honum finnst

Hann skorar á Don Pedro sem hefur tekið áskoruninni um að halda áfram keðjunni. Ég fór með flösku til Péturs í dag og nú er að bíða og sjá hvað hann segir um vínið.

Tvö ítölsk fá fína dóma í Gestgjafanum

Jákvæðir dómar um Vitiano vínin halda áfram að streyma inn.

Nýlega fékk Vitiano hvítvínið 89 stig í Morgunblaðinu (lestu dóminn) og 4 1/2 glas í Gestgjafanum (lestu dóminn).

Nú var það Vitiano rauðvínið sem fékk 4 glös í Gestgjafanum og mjög jákvæða umfjöllun.

Í sömu grein er fjallað um rauðvínið Pinot Nero frá San Michele Appiano sem fær 3 1/2 glas.

Lestu allan dóminn um þessi tvö vín í nýjasta Gestgjafanum

Gestablogg — Sigurjón og Ritstjórinn heimsækja MR í Köben

Vinur okkar hann Sigurjón fjallar um heimsókn sína og Ritstjórans á MR veitingastaðinn í Köben.

Hann er með eina Michelin stjörnu..

Þrátt fyrir að lenda í alvarlegu Dry Martini áfalli var heimsókn þeirra á veitingastaðinn hin ánægjulegasta.

Lestu umfjöllun Sigurjóns um MR á blogginu okkar

Við þökkum Sigurjóni fyrir innleggið. Ef fólki væru gefnar Michelin stjörnur myndum við gefa Sigurjóni þrjár.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.