Vín & matur

Vínpósturinn, 23. ágúst 2007

Nebbiolo frá La Spinetta
Uppskrift — Sítrónukjúklingur og pönnusteiktur kúrbítur
Þrisvar sinnum fullt hús hjá Decanter
d'Arenberg vídeóblogg
Niðurstöður úr límmiðakönnun

Nebbiolo frá La Spinetta

Sú þrúga sem skotið hefur La Spinetta víngerðinni upp á stjörnuhimininn er Nebbiolo . Fyrst voru það þrjú einnarekru Barbaresco vín sem komu á markaðinn frá víngerðinni og síðan eitt stykki Barolo en eins og lög gera ráð fyrir eru þau að öllu leyti úr Nebbiolo þrúgunni.

Nýjasta vínið þeirra úr þrúgunni heitir hins vegar hvorki Barolo né Barbaresco heldur einfaldlega Langhe Nebbiolo í höfuðið á þrúgunni sjálfri og svæðinu (Langhe) sem það kemur frá.

Ég smakkaði þetta vín á Vinitaly vínsýningunni (lestu um heimsóknina) um páskana og ákvað samstundis að kippa því með í næstu sendingu. Það hefur ósvikinn Nebbiolo karakter með angan af villtum sveppum, rósum, blóðappelsínu og svo fundust þarna áfengislegin kirsuber. Mikil fylling, þykkt og nokkuð eikað undir áberandi áferðarmjúku yfirborði.

Meira svona takk.

Langhe Nebbiolo 2005 kostar 2.690 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.

Það gefur stóru Nebbiolo vínum víngerðarinnar lítið eftir en kostar aðeins um þriðjung af verði þeirra.

 

 

Áttu vin hefur drekkur léttvín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Uppskrift — Sítrónukjúklingur og pönnusteiktur kúrbítur

Bloggarinn er haldinn einhverri kjúklingaþreytu þessa dagana en þessi uppskrift kom kjúlla litla aftur á kortið.

Svo hefur bloggarinn áður eldað sítrónukjúkling og vill koma því á framfæri að í þetta skipti var loksins í alvörunni sítrónubragð af honum.

Þrisvar sinnum fullt hús hjá Decanter

Ég hef lesið nánast alla víndóma Decanter víntímaritsins breska síðastliðinn áratug eða meira, hvort sem er í tímaritinu sjálfu eða á vefsíðunni þeirra.

Ég minnist þess ekki að nokkurn tíman hafi einn og sami framleiðandinn í einu og sama blaðinu fengið fullt hús, eða 5 stjörnur, fyrir svo mörg sem þrjú af sínum vínum. Tvö kannski, en ekki þrjú.

Í nýlegri Toskana umfjöllun blaðsins (ágúst 2007) fá þrjú af Chianti Classico vínum Castello di Querceto stjörnurnar fimm. Það eru Chianti Classico 2005 (fæst í Vínbúðunum), Chianti Classico Riserva 2003 (fæst í haust) og Chianti Classico Riserva Il Picchio 2003.

Alls fá 8 önnur vín frá Chianti Classico svæðinu fullt hús stiga í blaðinu, öll frá sitt hvorum framleiðandanum. 30 Chianti Classico vín fá 4 stjörnur og 31 fá 3 stjörnur.

Við óskum Castello di Querceto til hamingju með þrennuna.

Framleiðandinn heimsótti okkur í júní. Lestu meira á blogginu

 

 

d'Arenberg vídeóblogg

Smelltu til að sjá Chester sjálfan fjalla um vínið sitt The Dead Arm 2005

Niðurstöður úr límmiðakönnun

Takk fyrir allar þær góðu skoðanir á límmiðunum sem voru sendar okkur í tölvupósti eða settar á bloggið.

Skoðaðu miðana á blogginu og lestu athugasemdirnar

Miðar 1 og 3 komu best út, 2 rétt á eftir.

Málið er í skoðun og verður tilkynnt bráðlega hvaða miði mun heilsa þér í framtíðinni þegar þú kaupir vínflösku frá okkur í Vínbúðunum.

Og jú, líklegast verður lítið "m" í matur.

 

 

Bestu kveðjur,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.