Vínkeðjan heldur áfram að þræða sig í gegnum bloggheima.
Núna er það Don Pedro sem bloggar um The Footbolt.
Þetta er all svakaleg bloggfærsla.
Hún er ekki bara löng og skemmtilega uppbyggð með mörgum myndum heldur er metnaðurinn svo mikill að Don Pedro fór alla leið til Svíþjóðar til að finna kjöraðstæður til að smakka vínið.
Verst að flaskan var skemmd.
Lestu bloggið hans Don Pedro um The Footbolt
Ný flaska bíður Don Pedro við komuna til landsins enda ómögulegt annað en að hann smakki eintak sem er í lagi.
Don Pedro skorar á Huga til að taka við keðjunni.
The Footbolt kostar 1.750 kr. og fæst í stærri Vínbúðum.
![]()
Áttu vin sem er bloggari?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Það hafa margir lent í því eins og hann Don Pedro að vínið í flöskunni er skemmt. Þá er enginn ástæða að vera að svolgra því í sig heldur bara rölta aftur í Vínbúðirnar og skila víninu — eða láta þjóninn kurteislega vita ef þú ert staddur á veitingastað.
Skemmd vín eru ekkert feimnismál.
Þetta er eðlilegur hluti af víngerð. Vín eru lifandi. Sum vín eru meira lifandi en önnur.
Ein sú ástæða sem veldur því að mörg vín af dýrari og metnaðarfyllri sortinni skemmast er að þau hafa ekkert verið filteruð eða síuð
Þess er stundum getið á flöskumiðanum — t.d. stendur aftan á The Footbolt "no fining or filtration".
Það sem þetta þýðir er að vínin hafa ekki verið látin fara í gegnum neina filtera eða síur sem hugsanlega gætu rænt því karakter sínum. Slík vín eru stundum flóknari og meira spennandi en önnur en um leið viðkvæmari fyrir hnjaski og líklegri til þess að skemmast. Botnfall er oft meira áberandi í slíkum vínum en það þarf ekki að vera.
Einföld borðvín, súpermarkaðsvín og kassavín t.d., fara yfirleitt í gegnum slíkar hreinsanir svo þau þoli betur alls konar hnjask og hitasveiflur en fyrir vikið geta þau orðið einstrengingslegri og ópersónulegri.
Það skal samt tekið fram að filtering og síun sem er notuð á vandvirkan og metnaðarfullan hátt geta bætt gæði víns — og að vín getur vel verið illa gert þótt það hafi ekki verið filterað eða síað.
— — — — —
Ég fékk tölvupóst um daginn þar sem viðkomandi sagði mér að ákveðið rauðvín hefði verið gott nema hvað það hafi verið mikið botnfall í flöskunni.
Botnfall segir oft til um hvort vín hafi verið filterað og síað eða ekki. Mikið botnfall gefur til kynna að svo sé ekki. Þótt það segi ekki nema lítinn hluta af sögunni þá getur botnfall verið gæðamerki. Það segir okkur ef til vill að framleiðandinn vildi frekar koma frá sér víni sem byggi yfir persónuleika jafnvel þótt það væri viðkvæmara og vandmeðfarnara heldur en víni sem væri auðvelt í meðförum en karakterlítið.
En ég ítreka aftur að botnfall getur líka átt sér stað í slæmu víni og að framleiðandi geti jafnvel verið að misnota sér þá skoðun að ófilteruð og ósíuð vín séu betri en önnur með því framleiða slík vín án þess uppfylla aðrar gæðakröfur.
Ef þetta er ekki nóg má lesa fleiri blaðsíður um filteringu og síun hér
Lestu líka almennt um víngerð á Wikipedia
![]()
Það er komið aftur í Vínbúðirnar eftir árs hlé.
Dolcetto d'Alba frá stjörnuframleiðandanum með stóru krumlurnar, Luciano Sandrone.
Þetta er 2004 árgangur af víninu sem er með þeim betri. Þegar ég hitti Luciano á Vinitaly í vor hafði hann nýlega drukkið það á veitingastað og var allur uppveðraður yfir því hvað það var gott. Þetta er nefnilega gott tækifæri til þess að smakka sæmilega þroskað Dolcetto því vanalega fást þau bara mjög ung — 2006 árgangurinn er t.d. að koma á markaðinn í sumar.
Svo er miðinn flottur.
Dolcetto d'Alba 2004 fæst í Vínbúðunum Kringlunni og kostar 1.890 kr.
Það er ódýr kynning á Piemonte héraði sem annars er rómað fyrir að gera einhver dýrustu og bestu vín Ítalíu.
Annars er óvenjugott úrval af vínum frá Luciano Sandrone fáanlegt í Vínbúðunum núna: Barolo Le Vigne (7.400 kr.), Nebbiolo d'Alba (3.390 kr.) og Barbera d'Alba (2.700 kr.).
Og hvað þýðir nú eiginlega þetta Alba sem kemur fyrir í nöfnum þessara vína?
Alba er bær í Piemonte og heiti vínanna einfaldlega kennd við hann, d'Alba þýðir "frá Alba".
![]()
Það stefnir í góða mætinga á vínsmökkunina með Castello di Querceto á La Primavera þann 30.6. kl. 14.00.
20 hafa staðfest sem þýðir að svona 10 sæti eru enn eftir.
Sendu okkur lína á vinogmatur@vinogmatur.is eða svaraðu þessum pósti til að láta taka frá sæti.
![]()
Á þessari fínu síðu er hægt að nálgast dóma þriggja víngagnrýnenda á nær öllum helstu Bordeaux vínum af 2006 árgangi.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.