San Michele Appiano víngerðin er 100 ára í ár (Lestu um afmælið). Víngerðin er kennd við samnefndan bæ Appiano sem er í u
.þ.b. 15 mínútna keyrslu frá Bolzano, höfuðborg Alto Adige fylkis nyrst á Ítalíu. Eins og ég hef áður bent á þá eru íbúar héraðsins tvítyngdir, tala bæði ítölsku og þýsku, og allar merkingar og áletranir bæði skrifaðar á ítölsku og þýsku.
Á flöskumiða Pinot Nero 2004 stendur t.d. bæði:
San Michele Appiano og St. Michael-Eppan fyrir nafn framleiðandans;
Pinot Nero og Blauburgunder fyrir nafn þrúgunnar (Pinot Noir er franska heitið sem flestir nota);
Alto Adige og Sud-Tyrol
fyrir nafn héraðsins.
Meira að segja er þýskan notuð fyrst á miðanum og ítalskan fylgir svo á eftir. Ég nota samt sjálfur alltaf ítölskuna, hún hljómar einfaldlega betur, sérstaklega þar sem við erum nú að fjalla um vín frá Ítalíu.
Pinot Nero 2004 frá Appiano vakti hrifningu þegar við smökkuðum það fyrst í u.þ.b. 10 manna smakkhóp þar sem mörgum ólíkum vínum ægði saman. Öllum fannst þetta skemmtilegt vín með góðan karakter — enda dafnar Pinot Noir þrúgan hvergi betur á Ítalíu en þarna í norðrinu.
Liturinn er ljós eins og einkennir Pinot Noir þrúguna. Ilmurinn er reykugur og minnir á hafið (kannski reyktur lax?) með örlitlum votti af eik eftir 12 mánaða legu í stórum, slóvenskum eikartunnum (sjáðu mynd af þessum eikartunnum) áður en vínið er sett á flösku og ferskri angan af ljósum en vel þroskuðum berjum enda vínið 13.5% sem er dágott fyrir Pinot Noir. Í munni er vínið þægilegt, með mátulegri sýru og mildum tannínum.
Smellpassar með grilluðum kjúklingi og innbökuðum laxi (sjá uppskrift).
Pinot Nero 2004 frá Appiano hefur verið valið á Business Class vínlista Icelandair fyrir árið 2007.
Kostar 1.980 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
Áttu vin sem fannst Sideways skemmtileg?
Smelltu þá hér til að
láta hann vita af þessu góða Pinot Noir
![]()
Það eru nokkur sæti laus á vínsmökkunina á La Primavera á Laugardaginn kl. 14.00.
Sendu okkur póst til að láta taka frá sæti með því að svara þessum eða senda okkur línu á vinogmatur@internet.is
Vínlistinn er girnilegur og Leifur úbýr nasl til að hafa með.
![]()

Hið hálfsæta og freyðandi hvítvín Moscato d'Asti (1.290 kr.) frá La Spinetta sem valið var Sumarvín og Bestu Kaupin í Gestgjafanum er að detta úr sölu.
Unnendur þessa víns athugið — þið hafið nokkra daga til að ná í það sem er eftir.
Ég hefði þurfti að selja 500 flöskur til að halda þessu víni inni í Vínbúðunum og um 1000 flöskur til að koma því í svokallaðan kjarna þar sem vínið fær dreifingu í fleiri Vínbúðir.
Það tókst ekki.
Annað vín frá La Spinetta sem dettur líka úr sölu er Barbera d'Asti Ca di Pian (2.390 kr.)
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.