Vín & matur

Vínpósturinn, 8. febrúar 2007

AMEDEI súkkulaðinámskeið
Vín fyrir brúðkaup — VÍNLISTI
Tvö rauðvín á Top 15 lista Morgunblaðsins

AMEDEI súkkulaðinámskeið

Við ætlum að vera með Amedei súkkulaðismökkun á Centrum hótelinu í Aðalstræti miðvikudaginn 21. febrúar kl. 18.00 í samstarfi við Vínskólann hennar Dominique. Okkur til aðstoðar verður Ásgeir Sandholt bakarameistari.

Þarna verða á ferðinni nokkrir mismunandi styrkleikar af dökku súkkulaði, mjólkursúkkulaði, 6 tegundir af 70% súkkulaði frá ólíkum löndum og eitthvað fleira frá hinni rómuðu Amedei súkkulaðigerð í Toskana.

Þótt súkkulaðið sé sæla út af fyrir sig ætlum við að prófa þrjár tegundir af víni með, Vin santo frá Castello di Querceto, Passito Sagrantino di Montefalco frá Arnaldo Caprai og The Laughing Magpie frá d’Arenberg.

Námskeiðið kostar 2.200 kr. Vinsamlegast sendið póst á vinogmatur@internet.is til að láta taka frá sæti.

Upplýsingar um námskeiðið eru líka á blogginu

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Vín fyrir brúðkaup — VÍNLISTI

Vín er oft, af einhverjum undarlegum ástæðum, einhver vanræktasti þátturinn í mörgum brúðkaupum.

Ég segi - látið pabba blæða aðeins meira, nokkrir hundrað kallar í viðbót per flöskur og málið er leyst. Það kostar aðeins meira en bragðast miklu betra.

Við tókum saman lista af nokkrum hvítvínum og rauðvínum sem eiga það sameiginlegt að kosta nokkrum hundað köllum meira en það sem fólk er vant að borga fyrir vín í brúðkaupum.

Verðbilið er 1.370 til 1.590 kr.

Skoðaðu listann hér

Ath! Ef brúðkaupsveislan er haldin á stað með vínveitingaleyfi er ekkert mál að nota okkar vín fyrir veisluna (t.d. fá að koma með vín sjálf eða kaupa í gegnum staðinn) heldur en að nota vín af vínlista staðarins (sem getur verið ansi misjafn )

Tvö rauðvín á Top 15 í Morgunblaðinu

Steingrímur rifjar upp 15 vín af þeim sem stóðu upp úr á árinu sem var að líða. Chateau de Flaugergues og Fontodi Chianti Classico eru þar á meðal

Lestu meira á blogginu

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.