The Custodian frá d'Arenberg
Rauðvínið The Custodian frá d'Arenberg er komið aftur í Vínbúðirnar.
Árgangurinn er 2004 og sem fyrr er vínið að öllu leyti úr þrúgunni Grenache. d'Arenberg fjölskyldan er stolt af Grenache þrúgunni og hefur haldið henni á lofti í gegnum súrt og sætt allt frá stofnun víngerðarinnar árið 1912. "A classic Grenache" segir vinur okkar Robert Parker um The Custodian 2004.
Það er töluvert brambolt í þessu víni, þykkt, sultað og kryddað.
Grill, grill, grill. Vínið getur auðveldlega gengið í hjónaband með bragðmiklu grillmeti, barbeque-sósum og slíku.
Lestu um The Custodian á vefsíðu framleiðandans »
Póstlistaáskorun hlýtur frábærar viðtökur
Hátt í 60 nýir áskrifendur húrruðust inn á póstlistann eftir póstlistaáskorunina sem við sendum út fyrir tveimur vikum síðan.
Hjartanlega velkomin.
Nú vantar bara 37 til viðbótar og þá munum við draga út fyrsta vinninginn.
Hvað er í verðlaun? »
Nýr matseðill á La Primavera
Það er alltaf gott í matinn á La Primavera.
Nýr matseðill fór í gang á dögunum.
Þar er meðal annars að finna ofnbakaðan aspas með parmesan, sóltómötum og hvítlaukssmjöri, svart spaghetti með risarækjum hvítlauk og eldpipar og kálfasneiðar "limoncello".
Mmmmmmm.
Unnendur Nautacarpaccio geta þó andað léttar því sá fasti liður fer hvergi.
Svo er upplagt að kíkja í hádeginu og njóta góðs matar í einu fallegasta umhverfi sem býðst í borginni.
Kíktu á vínin okkar á La Primavera »
|