Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

föstudaginn 4.júní 2010

Sendur annað slagið, til
1160 tryggra áskrifenda

Tvö ítölsk hvítvín

Hér er voða fín mynd

Ca Rugate Soave Classico San Michele

NÝTT Í VÍNBÚÐUNUM

Gargandi snilld!

Soave hvítvínssvæðið í Veneto héraði N-Ítalíu (korter í bíl frá Veróna) var lengi vel vanrækt. "Ofrækt" væri réttari lýsing því víngerðin einkenndist af glundri.

Svolítil bylting hefur breytt þessu.

Soave bylting.

Soave Classico San Michele 2009 (2.597 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi) frá Ca Rugate er af nýju kynslóðinni. 

Ljúft hvítvín úr Garganega þrúgunni með ferskum blóma- og ávaxtailmi sem flytur mann út á engi einhvers staðar á N-Ítalíu.

Kíktu endilega við og smakkaðu vínið í Frú Laugu í dag kl. 16.00.

SUMARTILBOÐ

Verðlækkun á Hvítu Beljunni

Í tilefni sumars lækkar, nei hrynur, verðið á hvítu Beljunni úr 5.890 kr. niður í 4.890.

Með fulla spena af ítölsku hvítvíni fæst hún í Vínbúðunum Skútuvogi, Kringlunni og Heiðrúnu.

Sú rauða heldur sínu striki á 5.890 kr.

Blessað svínið

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165