Eitt af þessum vonlausu vínum
Við
vissum alveg að það myndi gerast.
Ný syrpa af vínum
frá Chateau
de Mourgues du Gres í S-Frakklandi hefur ekki selst
mjög mikið frá því í sumar.
Það gerðist líka
þegar við tókum fyrst inn vín frá
framleiðandanum fyrir nokkrum árum síðan.
Eitt af þessum vonlausu vínum
sem eiga sér ekki uppdráttar í Vínbúðunum.
Samt getum við ekki hætt
að flytja þau inn.
Lestu
meira um vangaveltur bloggarans
Okkur langar alveg að selja
meira, en ef við fengjum að ráða seldum við
frekar fáar flöskur af mörgum tegundum frekar
en margar flöskur af fáum.
Vínheimurinn
er einfaldlega of stór og spennandi og við eigum
það til að missa okkur yfir einhverju nýju
og framandi, litlu og heillandi, upprunalegu og ekta.
Vínin þrjú
frá Chateau Mourgues de Gres eru í sérstöku
uppáhaldi.
Ekki
síst hið magnaða rauðvín Terre
de Feu 2007 (3.190 kr.) sem við leyfum okkur að
íslenska sem "Eldlendur", framleitt úr
Syrah og Grenache þrúgum af gömlum vínvið.
Ilmríkt og "heitt" vín sem kitlar bragðlaukana
til að biðja um meira.
Litli bróðir er Les
Galets Rouges 2008 (1.850 kr./500ml) sem við fluttum
inn eingöngu í 500ml flöskum til að prófa.
Að mestu leyti framleitt úr Syrah þrúgunnu,
þétt og frísklegt.
Síðan má ekki
gleyma hvítvíninu í hópnum Les
Galets Dorés 2008 (2.590 kr.) sem hefur suðræna
ávaxtatóna og hunangskennda fyllingu sem þekur
góminn.
Skoðaðu
vídeó af heimsókn til Mourgues de Gres
(hefst 0:48)»
Sólþurrkaður
þorskur með aioli
Hann
lítur ekki bara girnilega út saltfiskurinn sólþurrkaði
frá Langanesi (1.980 kr/kg í Frú
Laugu) heldur er hann virkilega gómsætur.
Það þarf að
útvatna fiskinn í 2-3 daga svo góður
undirbúningur er nauðsynlegur.
En þegar kemur að matreiðslunni
er hún afar einföld.
Við tókum miðjarðarhafsútgáfuna
og hrærðum aioli sósu úr hvítlauk,
eggjarauðu, sítrónu og ólífuolíu.
Suður-franskt hvítvín
Little
James frá Saint Cosmé smellpassaði með
fiskinum.
Uppskrift
af sólþurrkuðum saltfiski með aioli »