Vín & matur

Vínpósturinn, 25. október 2007

Úmbría kemur til Íslands 14. til 18. nóvember
Sandhofer masterclass
Vínkeðjan hjá hálfum Huga
Vin santo í Vogue Men

Úmbría kemur til Íslands 14. til 18. nóvember

Takið frá 14. nóvember því þá mætir hún Roberta frá Arnaldo Caprai í Úmbría héraði Ítalíu og kynnir vín framleiðandans sem var valinn besti vínframleiðandi Ítalíu af Gambero Rosso (Slow Food útgáfan) árið 2006. Vínsmökkunin er í samstarfi við Vínskólann.

Henni til fulltingis verður kokkurinn Gabriele sem ætlar að matreiða rétti frá Úmbría héraðinu á La Primavera þar sem sérstakur matar- og vínseðill verður í boði frá 15. til 18. nóvember.

Meiri upplýsingar í næsta Vínpósti.

Smelltu hér til að lesa um Úmbría héraðið.

Myndin er af einni af vínekrum Arnaldo Caprai

Áttu vin sem hefur gaman að vínsmökkun?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Sandhofer masterclass í Vínskólanum

Næstkomandi miðvikudag, 31. október kl. 18.00, mun vínframleiðandinn og söngspýran Hubert Sandhofer halda vínsmökkun í Vínskólanum.

Eitt vína hans, hið hálffreyðandi og skemmtilega Frizzando hvítvín, fæst í Vínbúðunum á 1.850 kr.

Frizzando, ja.

Sendið póst á dominique@vinskolinn.is til að taka frá sæti. Verð 2.200 kr.

Vínkeðjan hjá hálfum Huga

Hugi er búinn að festa nýjan hlekk í Vínkeðjuna.

Lestu hvað hann hefur að segja um The Footbolt

Hann skorar á bloggarann Sigurð Ármannsson sem hefur tekið áskoruninni.

Lestu meira um The Footbolt frá d'Arenberg á vefsíðu framleiðandans

Vin santo í Vogue Men

Það er ekkert heilagt þegar tískubransinn er annars vegar.

Ekki einu sinni hið heilaga Vin santo.

Meira á blogginu

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.