Calamiac Terroir Minervois 2005 frá Domaine Combe Blanche fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Skútuvogi og Kringlunni á 2.390 kr.
|
NÝTT RAUÐVÍN
Rauðvín beint frá bónda
Kosturinn við mörg vín frá S-Frakklandi er hagstætt verð.
Við þurfum hagstætt verð.
Þau eru líka oft þroskuð og ávaxtarík eftir Miðjarðarhafssólina og spriklandi af lífi og karakter.
Fær í flestan sjó þegar kemur að því að njóta þeirra með mat.
En framleiðendur eru margir og vínin mörg og þar þurfum við að þefa uppi eitthvað spennandi — eitthvað sem okkur finnst ástæða til að flytja úr sínu náttúrulega umhverfi alla leið í hillur Vínbúðanna.
Calamiac Terroir Minervois 2005 er svona vín, með 5 ár á herðunum og farið að sýna sínar bestu hliðar.
Og framleiðandinn er bara lítill bóndi sem mælist varla á alþjóðaratsjám eða google earth.
Gestgjafinn valdi það VÍN MÁNAÐARINS og lýsti svo vel "Öll Minervois-sveitin í glasinu, karakterríkt vín og elegant, gómsætt."
Ein góð ástæða til að skreppa í Vínbúðirnar.
|