Einu sinni vitnaði ég á þessum póstlista (Lestu póstinn) í þá oft kveðnu vísu vínspekúlanta að rósavínið okkar frá Domaine Tempier
væri besta rósavín Frakklands. Og Frakkar gera bestu rósavín í heimi. Lestu til dæmis þessa umfjöllun
Ég er ekki viss um að þeir hafi verið búnir að kynnast Les Capitelles frá Chateau Mourgues du Gres.
Les Capitelles smakkaði ég innan um tvö önnur rósavín frá framleiðandanum. Það var óumdeilanlega best. Reyndar dýrast líka. En 1.800 krónur út úr búð þykir mér samt ekki mikið fyrir svo gott vín þannig að ég keypti það.
Les Capitelles er látið þroskast skamma stund í eikartunnum, nokkuð sem rósavín gera gott sem aldrei. Það gefur hinum þétta og safaríka ávexti aukna dýpt og gerir það að því einstaka rósavíni sem það er.
Ef vínið fær þær viðtökur sem mér finnst það eiga skilið hef ég áhyggjur að ég hafi keypt of lítið.
Chateau Mourgues du Gres Les Capitelles 2004
Verð: 1.800 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni
Þrúgur: Mourvédre (70%), Syrah og Grenache
Svæði: Costières de Nîmes í Rhone
Matur: Bragðmikið vín sem getur gengið í flest hlutverk hvítvína og rauðvína
Komdu þér og vinum þínum á óvart og uppgötvaðu hversu góð rósavín geta orðið.
Les Capitelles mun fást á veitingastaðinum VOX innan tíðar.
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Fyrirsögnin segir eiginlega allt sem segja þarf. Uppskriftin er svo einföld. Hún kemur frá Birnu systir sem gerði þennan forrétt um helgina og bauð gestum sínum Les Capitelles rósavínið með. Gestirnir voru yfir sig hrifnir og hissa hversu gott rósavínið var.
En að réttinum.
Litlir mozzarella-ostar (t.d. þessi íslenski í pokanum) eru bleyttir í Rietine ólífuolíu og piprað yfir. Basílikublað er sett á hvern ost og steiktu beikoninu vafið utan um. Pinna stungið í gegn og borið fram.
Les Capitelles er ekki bara fínlegt rósavín heldur líka þykkt og munaðarfullt og passar vel með þessum rétti.
Rietine ólífuolían fæst í Kokku á 1.650 kr.
![]()
Grein um Vín og mat var í Fréttablaðinu fyrir skömmu. Þar var undirritaður í kunnuglegum stellingum að fjalla um vínsmakkanir á vegum fyrirtækisins.
Lestu greinina (bls. 26 í pdf skjalinu)
Ég ætla að nota tækifærið og benda á að hægt er að senda tölvupóst á vinogmatur@internet.is til að óska eftir vínsmakki. Viðmiðunarverð fyrir manninn er 1.500 kr.
Stefán vínsmakkari fjallar um d'Arenberg vínin á vefsíðu sinni www.smakkarinn.is
![]()
Njótið heil ,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.