Vín & matur

Vínpósturinn, 7. febrúar

Montefalco Rosso
Grecante komið í kjarna
Frakklandsferð — Mugison í Meursault
Michelin 2008

Montefalco Rosso

Þau eru hæðótt, rauðvínin frá Arnaldo Caprai.

Í síðasta vínpósti fjallaði ég um rauðvínið Poggio Belvedere sem merkir "útsýnishæð" í lauslegri þýðingu og nú er fjallað um rauðvínið Montefalco Rosso en Montefalco þýðir einfaldlega "Fálkafell".

Rétt eins og "fell" gefur til kynna eitthvað stærra og meira en einfaldlega "hæð" er Montefalco Rosso töluvert meira um sig en Poggio Belvedere. Bæði eru þau að mestu úr Sangiovese þrúgunni en þar sem að í Poggio Belvedere er sett 20% af hinn léttleikandi þrúgu Ciliegiolo fara um 15% af hinni bragðmiklu og kröftugu Sagrantino þrúgu í Montefalco Rosso auk 15% Merlot. Sömuleiðis er Poggio Belvedere alveg óeikað á meðan Montefalco Rosso þroskast í 12 mánuði í eikartunnum.

Montefalco Rosso kostar 2.190 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni. Það elskar nautasteikur en líður líka vel nálægt hvers konar öðru kjötmeti.

Önnur Caprai vín í Vínbúðunum fyrir utan þessi tvö sem nefnd eru hér ofar eru hvítvínið Grecante (1.790 kr.) og kraftaboltinn Sagrantino di Montefalco Collepiano (4.300 kr.).

Caprai vín má líka finna á veitingastöðum. Grecante, Poggio Belvedere, 25 Anni og Grappa má finna á La Primavera, Grappa, Collepiano og Grecante á Holtinu og 25 Anni á Argentínu.

Smelltu hér til að kíkja á nýja og glæsilega vefsíðu Caprai.

Smelltu hér til að lesa meira um bæinn Montefalco sem vínið dregur nafn sitt af.

Smelltu hér til að skoða hið íslenska Fálkafell sem skv. vefsíðu skátafélagsins Klakks er skáli með "alveg frábærum kamri".

Áttu góðan vin sem sem gæti líkað Caprai?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Grecante komið í kjarna

Hvítvínið Grecante frá Arnaldo Caprai komst í kjarna Vínbúðanna 1. febrúar sem þýðir að nú fæst það ekki bara í Kringlunni og Heiðrúnu heldur í nokkrum öðrum búðum til viðbótar.

Meðal annars í Vínbúðinni á Blönduósi.

Kíktu á vinbud.is til að sjá hvar Grecante fæst

Grecante kostar 1.790 kr.

 

 

 

 

 

 

 

Frakklandsferð — Mugison í Meursault

"Þegar hér var komið við sögu var Mugison kominn í þungarokksgírinn og ég bað hann um að taka sér pásu."

Lestu meira um dag fjögur á ferðalagi bloggarans í Frakklandi.

Michelin 2008 stjörnugjöf fyrir veitingastaði á Bretlandi og Írlandi

Lestum um Michelin 2008 á blogginu og skoðaðu lista yfir stjörnuveitingastaði.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.