Hvíti súkkulaðiteningurinn frá Amedei er fallegt og stílhreint borðskraut í brúðkaupsveislu.
Hann er líka góður á bragðið.
Það má setja einn á hvern disk eða dreifa þeim með lengra millibili.
Hann væri upplagður með kaffinu og freyðivíninu eða bara til þess að narta í hvenær sem er.
Inni í teningnum leynast 6 litlar mjólkursúkkulaðiplötur í munnbitastærð. Mjólkursúkkulaði eins og það gerist best.
Og hann kostar ekkert svo mikið eða 210 kr. stykkið á heildsöluverði beint frá okkur (lágmarksmagn 1 kassi með 32 teningum). Pantaðu með því að svara þessum pósti eða senda okkur línu á vinogmatur@vinogmatur.is.
Teninginn hvíta má líka finna í lausu hjá Kokku á Laugaveginum og á kaffihúsum Kaffitárs. Svartur teningur er líka fáanlegur en hann er með 70% súkkulaði.
Smelltu líka hér til að skoða brúðkaupsvínlistann okkar
![]()
Áttu vin sem er að fara að gifta sig?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
The Stump Jump hvítvínið frá d'Arenberg í Ástralíu fær heiðurstitilinn Bestu kaupin í nýjasta Gestgjafanum og 4 glös.
Þeim finnst það "eitt af þessum vínum sem skera sig úr og hrífa mann því það er einfaldlega yndislegt".
Ef eitthvað hvítvín er sumarlegt og grillvænt þá er það þetta.
Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.490 kr.
![]()
Rakel hristi þetta salat fram úr erminni um helgina við mjög góðar undirtektir viðstaddra.
"Mangósalat" er líklegast rétta nafnið þótt mangóið sé ekki endilega mikilvægasta hráefnið heldur frekar allt hitt — góða ólífuolían, parmeggiano osturinn, hunangið, döðlurnar osfrv.
Smelltu hér til að fá uppskriftina af þessu gómsæta salati
Drukkum með því Frizzando frá Sandhofer sem er austurrískt, hálffreyðandi hvítvín og afskaplega ljúft og sumarlegt.
![]()
Robert Parker gefur Laderas de El Seque 2005 ein 90 stig. Ekki slæmt fyrir vín sem kostar einungis 1.290 kr.
Það gera 14,30 kr. per Parker stig sem er líklegast lægsti Parker stuðull sem nokkuð vín hefur fengið hjá okkur.
Kaupin verða því ekki mikið betri en í þessu snotra rauðvíni frá Spáni.
Fæst á TILBOÐI í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.290 kr. - framlengt út júní.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.