Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 5. júní 2008

Sendur aðra hvora viku
til 670 tryggra áskrifanda

Í þessum Vínpósti: Vín mánaðarins í Gestgjafanum, viðtalið: Tinna á kaffibauninni, Þórdís bloggar um Grecante, mörg ný vín í sumar og myndir frá Kökukonsert

Chateau de Flaugergues er Vín mánaðarins í Gestgjafanum

2006 árgangur af GSM víninu Chateau de Flaugergues frá samnefndum framleiðanda í S-Frakklandi hefur verið fáanlegur í nokkra mánuði í Vínbúðunum.

Eins og alltaf þegar Gestgjafinn fjallar um vínin okkar fórum við með eina flösku af þessum nýja árgangi í höfuðstöðvar fyrirtækisins á eyjunni Atlantis og biðum svo þolinmóð eftir dómi þeirra mæðgina Dominique og Eymars sem fjalla um vín fyrir tímaritið.

Niðurstaðan er ljós. Dómur er upp kveðinn. Kjósendur eru sammála.

Chateau de Flaugergues 2006 hlýtur að þessu sinni ekki titilinn "kynþokkafyllsta vínið" eða "besta ljósmyndafyrirsætan" heldur er það valið "vín mánaðarins" sem er í raun samnefnari fyrir hitt plús ýmislegt fleira.

Allavegana, það er gott. Og ennþá á gamla verðinu, 1.794 kr.

Lestu allan dóminn í Gestgjafanum

Við mælum með því með góðu og einfaldlega matreiddu grillkjöti eins og lambafillet eða svínalundum með fersku kryddi.

Meira um framleiðandann »

Viðtalið: Tinna á kaffibauninni

Viðtalið er nýr fítus í Vínpóstinum þar sem einhver skemmtileg persóna úr lífríki vín- og matarheima er spurð um og hitt og þetta.

Verkinu er vasklega ritstýrt af hinum leiftrandi l'editeur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

Fyrsti viðmælandinn er Tinna sem rekur Kaffifélagið á Skólavörðustíg 10 (við hliðina á Ostabúðinni). Þetta er lítið, persónulegt kaffihús með fyrirtaks kaffi og góða þjónustu. Tinna skráir t.d. niður (ef þú vilt) hvaða kaffi þú kaupir svo þú munir það þegar þú kemur næst á kaffihúsið.

Lestu allt viðtalið við Tinnu og skoðaðu myndir frá heimsókninni.

Frá því í desember á síðasta ári hefur Tinna boðið gestum sínum upp á súkkulaði frá Amedei.

Allar myndamöppurnar okkar á flickr »

Þórdís bloggar um Grecante

Hún Þórdís íslenskufræðingur hélt áfram með vínkeðjuna okkar og fjallaði um hvítvínið Grecante frá Arnaldo Caprai.

Lestu hvað hún segir um Grecante

Þórdísi fannst vínið “ilma dásamlega í glasinu” og “frískandi, þurrt og mjög bragðgott” en elskhuginn fann að auki “exótíska ávexti og gott eftirbragð”.

Þar hitta þau naglann þráðbeint á höfuðið að okkar mati.

Bitra internetmamman Unnur hefur tekið áskoruninni um að halda vínkeðjunni áfram.

Lestu allt um vínkeðjuna »

Mörg ný vín í sumar

Það hefur verið rólegt á miðunum síðustu mánuði fyrir utan vín frá framleiðendum í Búrgúnd, Kaliforníu og Valpolicella en þau teljast öll með dýrari vínum og hafa ekki fengist í hillum Vínbúðanna.

Í sumar er hins vegar framundan hrina af vínum á mjög viðráðanlegum verðum, á bilinu 1.390 til 2.590 kr.

1. júlí hefja þrjú ný vín frá hinum austurríska Sandhofer reynslusölu; rauðvín, rósavín og hvítvín. 1. ágúst er svo stóri smellurinn því þá hefja reynslusölu 7 ný vín frá Ítalíu; hvítvín frá Umani Ronchi, hvítt og rautt frá Arnaldo Caprai, hvítt og rautt frá Falesco og síðast en ekki síst freyðandi rautt Lambrusco og yndislegt og sætt Moscato freyðivín frá Lini fjölskyldunni sem jafnframt er fyrsti framleiðandinn okkar frá Emilia-Romagna héraðinu.

Meira um allt þetta þegar nær dregur.

Skoðaðu listann yfir þá framleiðendur sem við flytjum inn »

Myndir frá Kökukonsert

Við tókum þátt í vel heppnuðum kökukonsert 21. maí síðastliðinn.

Við Hafliði heyrðum óminn af söngnum inn í eldhús þar sem við undirbjuggum herlegheitin á meðan á tónleikunum stóð, þrjár kökur og þrjú vín.

Kíktu á myndir frá tónleikum.

Allar myndamöppurnar okkar á flickr »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Vínframleiðandi vikunnar

Það er ekki furða að Chablis vín eru þekkt og vinsæl því þau eru líklegast einhver matarvænstu hvítvín sem finnast. Tvö slík frá Domaine Christian Moreau eru fáanleg í Vínbúðunum — kjörin þegar maður vill ekki bara hvítt heldur eitthvað verulega gott.

Meira um Domaine Christian Moreau »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Úrslitarimma NBA körfuboltans hefst á fimmtudaginn og gömlu fjendurnir, Boston Celtics og Los Angeles Lakers, mætast aftur í sögulegri viðureign.

Go Celtics!

Meira á nba.com

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst og spurði í hvaða Vínbúðum væri best að finna okkar vín.

Okkar svar: Í Heiðrúnu og Kringlunni fást öll vín, bæði svokölluð reynsluvín og kjarnavín. Við hvetjum fólk til að versla í þessum tveimur Vínbúðum því þar fást flest okkar vín.

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.