Engar myndir? Smelltu hér Vín og matur á Facebook · Vefur Víns og matar

Vínpósturinn

föstudaginn 26. mars 2010

Sendur annað slagið, til
1130 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Grátur án gnístran með Lacrima,
nýr og betri Vínpóstur, og svo framvegis

Lacrima Morro dAlba Fonte del Re

Nafnið tryggir gæðin: Lacrima Morro d'Alba "Fonte del Re" þýðir á góðri íslensku Rauðvínstár frá Morro d'Alba "Gosbrunnur konungsins".

RAUÐVÍNSTÁR ÚR ADRÍAHAFINU

Gráttu Lacrima, gráttu!

Við höfum flutt inn vín frá Umani Ronchi frá upphafi, m.a. hvítvínið vinsæla Casal di Serra sem fæst hér enn. Vinalegt vínfyrirtæki við Adríahafið sem okkur þykir orðið vænt um eftir gott samstarf.

Umani Ronchi er einn þekktasti fulltrúi Le Marche héraðsins og flaggberi svokallaðra staðbundinna þrúgna sem eru þrúgur sem hafa vaxið og dafnað á svæðinu í gegnum aldirnar frekar en innfluttar tískuþrúgur.

Án efa er sérstæðasta þrúgan í þessum hópi sú sem kallast Lacrima og kennd við bæinn Morro d'Alba af agnarlitlu vínræktarsvæði við Adríahafsströndina.

Nafnið Lacrima þýðir á íslensku "tár" vegna þess að síðsumars þegar hún er orðin þroskuð grætur hún votri dögg á yfirborð sitt - en líka hugsanlega vegna perlulaga lögunnar berjanna.

Þétt, þurrt en aldrei væmið

En það er ekki nafnið sem slær mann þótt skemmtilegt sé heldur karakter vínsins. Ilmurinn er engu líkur, heillandi og óvenjulegur fyrir rauðvín, rýkur úr glasinu með angan af blómahafi og dökkum berjum.

Í munni stígur vínið hins vegar fæti aftur til jarðar; all þétt og þurrt en aldrei væmið þrátt fyrir lokkandi ilminn.

Þetta jafnvægi gerir það að verkum að það er skemmtilegt matarvín ekki síst með feitum kjötréttum eða jafnvel óvenjulegri samsetningum eins og fiski og ýmis konar kryddaðri matargerð.

Lacrima di Morro d'Alba "Fonte del Re" 2007 frá kostar 2.790 kr. og fæst í Heiðrúnu, Kringlunni, Skútuvogi og Borgartúni.

Kíktu á Vín og mat á Facebook »

AF SKRIFSTOFUNNI

Nýtt útlit, sama röddin

Það hefur farið lítið fyrir Vínpóstinum síðustu vikur og mánuði en við höfum við að meitla hann í nýtt mót. Vínpósturinn verður styttri og léttari svo auðveldara verður að senda hann út hverju sinni og þá jafnvel allt að því vikulega ef tilefni er til.

Vonandi líkar ykkur vel!

P.S. Föstudagsvínsmakkið hjá Frú Laugu verður að sjálfsögðu á sínum stað í dag eins og venjulega, klukkan fimm. Í dag býður frúin upp á Lacrima di Morro d'Alba "Fonte del Re" 2007. Allir velkomnir.

Blessað svínið

Muu!

Beljan

Í Beljunni eru 3l af ítölsku gæða-borðvíni, rauðu og hvítu. Allt um Beljuna

Nýtt á blogginu

Bloggið

Bloggarinn lætur dæluna ganga. Sjáðu myndirnar! Lestu færslurnar!

Vín með mat

Vínið

Allt er gott í hófi. Meira að segja vínin frá Víni & mat. Meira um vínið með matnum

Fínerí á Fésbók

Fésbókin

Vín og matur er auðvitað á Facebook eins og allir hinir. Viltu vera memm?

Allt um okkur

Laugan

Allt sem þig langaði til að vita um okkur en þorðir ekki að spyrja. Öll svörin

Frú Lauga

Tíminn

Vilt þú vita hvað þú borðar? Kauptu inn hjá frúnni. Allt um frúnna

Vín & matur · Laugalæk 6 · Sími 693 7165