Hamborgarhryggur er sá jólamatur sem okkar börn hafa alist upp við. Meira að segja þau ár sem við bjuggum og héldum jól á Ítalíu eða í Bandaríkjunum var alltaf einhver (oftast afi jólasveinn) sem kom með hann með sér. Hefðir eru sérstaklega góðar á jólunum. Við Rakel ólumst hins vegar upp með rjúpur í matinn á aðfangadag. Rjúpurnar fannst mér vondar þegar ég var lítill og fékk mér bara meðlæti með mikið af sósu og sultu. Að lokum varð maður samgróinn hefðinni, ilmurinn úr eldhúsinu varð ómótstæðilegur og rjúpurnar ómissandi.
Rjúpur verða aftur á okkar borðum á sunnudaginn. Þær eru komnar í hús í sínum hvíta hami með brúna flekki. Börnunum finnst þær spennandi og mikið er spurt um byssur og veiðimenn. Eftirvænting er hluti af jólunum.
Með rjúpunum tökum við upp Tiziano frá Rietine í Toskana, bragðmikið vín úr Merlot og Lambrusco þrúgunum, svolítið villt og heillandi sveitalegt. Held það smellpassi með. Eigum reyndar 1997 árgang af víninu í kjallaranum sem við ætlum að taka upp en sá er fæst í Vínbúðunum, 1999, er alveg jafn góður. Svo verður ískalt Moscato d'Asti Bricco Quaglia frá La Spinetta aldrei langt undan, léttfreyðandi, sætt en ferskt svona kalt.
Þeim sem eiga eftir að gera jólavíninnkaupin bendum við á að skoða Hátíðarvínlistann okkar.
Gleðileg jól,
Arnar og Rakel
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.