Vín & matur

Vínpósturinn, 14. nóvember 2007

Castello di Querceto Riserva komið aftur
Caprai á La Primavera á morgun og í Vínskólanum í kvöld
AMEDEI gjafakassar — pantanir
Heimsókn til Frakklands — Dagur 1

Casetello di Querceto Chianti Classico Riserva 2003

Eftir næstum árs hlé kynnum við aftur til leiks Chianti Classico Riserva 2003 frá Castello di Querceto.

Þetta vín endurspeglar 2003 árganginn sem var afar heitur og er því um óvenju þroskað og þykkt vín að ræða. Erfiður árgangur fyrir marga framleiðendur en ekki hjá Castello di Querceto þar sem vínekrur þeirra eru í mikilli hæð og njóta svalara loftslags en almennt gengur í héraðinu.

Við hefðum getað byrjað aftur með 2004 árganginn sem er kannski dæmigerðari og jafnari árgangur fyrir þetta vín en þar sem að viðbrögð ykkar sem mættuð á vínsmökkun Castello di Querceto á La Primavera í sumar (sjá blogg) fyrir 2003 voru svo góð var ákveðið að hleypa skammti af honum inn fyrst — og taka síðan 2004 síðar á næsta ári.

2003 árgangurinn fær fullt hús stiga 5 stjörnur í Decanter víntímaritinu breska (lestu meira).

Castello di Querceto Chianti Classico Riserva 2003 kostar 2.490 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.

Þess má svo geta að tvö ný vín frá Castello di Querceto eru byrjuð í sölu í Vínbúðunum (Heiðrúnu og Kringlunni). Það eru freyðivínið Francois 1 (1.990 kr.) og hvítvínið Vernaccia di San Gimignano 2006 (1.390 kr.) en ég mun fjalla um þau hér meira síðar. Sömuleiðis hefur Vin santo (2.100 kr.) frá framleiðandanum verið valið á sérlista Vínbúðanna og mun fást þar á næstu dögum.

 

Áttu góðan vin sem þér þykir vænt um?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Caprai á La Primavera á morgun og í Vínskólanum í kvöld

Ég minni á skemmtilega vínsmökkun í kvöld, 14. nóvember, í Vínskólanum kl. 18.00 í Reykjavík Hótel Centrum.

Þar mun Roberta frá Arnaldo Caprai fræða gesta um framleiðandann og svæðið með tilheyrandi vínsmökkun.

Nokkur laus sæti.

Á morgun verður svo kvöldverður á La Primavera með gestakokkinum Gabriele sem eldar haustlegan, 5 rétta mateðil frá Úmbría héraði.

Pantanir fyrir vínsmökkun sendast á dominique@vinskolinn.is en fyrir kvöldmatinn á laprimavera@laprimavera.is eða í síma 561 8555.

Kíktu á þennan Vínpóst til að lesa meira

AMEDEI gjafakassar — pantanir

Nú líður senn að því að ég legg inn pöntun til AMEDEI á Ítalíu.

Sendingin verður ekki mikið umfram það sem ég hef þegar fengið fyrirspurnir um þannig að ef þú hefur áhuga á AMEDEI gjafakassa fyrir vini, viðskiptavini eða starfsmenn þá er best að hafa samband sem fyrst.

Sendu línu á vinogmatur@vinogmatur.is eða svaraðu þessum pósti.

Skoðaðu myndir af AMEDEI gjafakössum hér og lestu meira um innihaldið hér.

 

Frakklandsferð — Dagur 1

Seinkun, myrkur, rigning, umferðarhnútar, Chablis, fois gras, trufflur.

Lestu um fyrsta dag bloggarans í Frakklandi

Meira síðar.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.