Vín & matur

Vínpósturinn, 16. nóvember 2006

Chianti Classico vín fá umfjöllun í Mbl.
La Marèle uppselt
Myndir frá Mourgues du Gres
Parker bætir Breta í safnið

Umfjöllun í Mbl. : "Fátt betra en góður Chianti Classico frá Toscana með mat"

"Hér eru tvö fantagóð" segir Steingrímur um vínin okkar Rietine Chianti Classico 2003 og Fontodi Chianti Classico 2003.

Umfjöllunin birtist í Morgunblaðinu fyrir viku síðan. Einkunnir vínanna eru afar góðar og reyndar þær sömu og vínin fengu fyrir fyrri árganga hjá Steingrími (2001 af Rietine og 2002 af Fontodi).

Hann gefur Rietine 18/20 og Fontodi 19/20.

Steingrímur minnist á hversu ólík þessu tvö eru samt sem áður og erum við sammála því. Fontodi kemur frá bænum Panzano sem tilheyrir Flórens en Rietine er sunnar og tilheyrir Siena. Báðir einkar vel staðsettir.

Lestu allan dóminn hans Steingríms.

Fontodi er nútímalegri enda þroskaður í frönskum eikartunnum sem gefa honum súkkulaði og vanillu og víngerðin er öll afar fáguð. Toskana sveitin er engu að síður mjög áberandi í nefinu.

Rietine er aðeins meira af gamla skólanum og látinn þroskast í stórum slóvenskum eikartunnum sem gefa víninu ekki eins mikla eikaráferð. Engin alþjóðavæðing í þessu karaktermikla víni.

Fontodi Chianti Classico 2003 (2004 væntanlegur í des) kostar 1.890 kr. í kjarna (mörgum vínbúðum) og Rietine Chianti Classico 2003 kostar 1.800 kr. á reynslu (Heiðrún og Kringlan eingöngu).

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

La Marèle uppselt

Vínið s-franska sem við buðum upp á í síðasta pósti er uppselt. Takk fyrir.

Það er ástæða að benda áhugasömum á að svara vínpóstinum fljótt til að tryggja sér þau vín sem við bjóðum til sérpöntunar (þ.e.a.s. fást ekki í Vínbúðunum) enda magnið oft lítið.

Nýr árgangur af La Marèle mun koma innan tíðar og verður boðinn fyrst á þessum póstlista.

Myndir frá Mourgues du Gres

Ég fann skemmtilegar myndir frá Mourgues du Gres víngerðinni á netinu. Þær eru teknar af Britt og Per sem ég hitti á Vinisud í S-Frakklandi í vor.

Kíktur á bloggið til að skoða myndirnar

Mourgues du Gres gerir mjög skemmtileg vín í Rhone í S-Frakklandi. Reyndar er menningin á þessu svæði svo lík þeirri í nágrannahéraðinu Languedoc að svæðið er oftar tengt því héraði heldur en Rhone.

Rósavínið er frábært. Það fær alla til að leggja rósavínsfordóma sína á hilluna og endurskoða þann ágæta flokk. Rauðvínin eru svo full af ávexti og laus við hvöss tannín sem gerir þau þægileg þótt ekkert skorti upp á karakterinn. Prófið t.d. rauðvínin með krydduðum mat, t.d. indverskum, sem annars reynist rauðvínum mjög erfiður.

Parker bætir Breta í safnið

Robert Parker heldur áfram að styrkja Team America áður en nýuppfærða vefsíðan hans lítur dagsins ljós.

Lestu meira á blogginu

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.