Hver gjafakassi frá Amedei súkkulaðismiðjunni inniheldur ekki bara eitthvert besta súkkulaði sem völ er á heldur eru kassarnir einstaklega vandaðir.
Ég hef satt best að segja sjaldan séð jafn flottar umbúðir.
Og ég sem ætlaði að reyna að skrifa þennan pistil án þess að nota hástemmd lýsingarorð.
Í ár hefur gjafakössum Amedei fjölgað og birti ég hér fyrir neðan allt sem í boði er. Þeir eru flestir svartir en Collezione kassana er hægt að fá svarta eða hvíta.
Smelltu hér til að skoða myndir og innihaldslýsingar fyrir Amedei gjafakassana
Le Selezioni — 4.100 kr.
Le Tavolette I Neri — 1.050 kr.
Le Tavolette Red/Blond — 950 kr.
Le Tavolette Toscano — 1.300 kr.
Le Tavolette I frutti — 1.350 kr.
Collezione N°1 — 10.900 kr.
Collezione N°2 — 9.300 kr.
Collezione N°3 — 6.100 kr.
Collezione N°4 — 5.100 kr.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að gefa starfsmönnum eða viðskiptavinum þínum Amedei í jólagjöf. 5% afsláttur fæst fyrir 10-25 gjafakassa og 10% fyrir fleiri en 25.
Til þess að tryggja að þú fáir það sem þú hefur áhuga á þarf að senda pöntun til okkar fyrir 20. nóvember. Þá pöntum við vöruna frá Amedei og þannig kemur hún fersk til landsins í byrjun desember.
Fyrir utan Amedei gjafakassana er hægt að kaupa allar tegundir fyrirtækisins í stykkjatali að lágmarki 10. Láttu okkur vita ef þú vilt fá Amedei verðlistann sendan í heild sinni með því að svara þessum pósti eða senda okkur línu á vinogmatur@vinogmatur.is.
Inn með súkkulaðið, inn!
![]()
Áttu vin sem borðar súkkulaði?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Amedei er draumur í formi súkkulaðis — eins og segir í slagorði fyrirtækisins.
Orðspor draumsins hefur borist víða, m.a. til súkkulaðiakademínunnar sjálfrar, Chocolate Academy í London, þar sem Amedei súkkulaði hefur þótt skara fram úr framleiðslu annarra fyrirtækja þau tvö ár sem verðlaunin hafa verið veitt.
Smelltu hér til að lesa um súkkulaðióskarinn sem Amedei hefur fengið
Það er auðvelt að láta drauminn rætast. Bara bíta í og bingó!
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.