Stump Jump "létt ristað" Chardonnay
Ef
maður slær inn leitarorðið "Chardonnay"
á vefsíðu Vínbúðanna birtast
107 vín.
Það þýðir
að um helmingur þeirra 215 hvítvína
sem fást í Vínbúðunum er framleiddur
úr Chardonnay þrúgunni, að
öllu leyti eða hluta.
Hlutfallið er reyndar enn hærra
því fjölmörg hvítvín til
viðbótar eru framleidd úr Chardonnay þótt
það komi hvergi fram í nafninu eins og t.d.
í Chablis og öðrum hvítvínum frá
Búrgúndarhéraði.
Fyrir utan Búrgúndarvínin
okkar höfum við einmitt lítið sinnt þessari
heimsþekktu þrúgu sem svo mikið er til
af og einbeitt okkur frekar að öðrum og nýjum
kostum. Undantekning er Beljan
sem rak á strendur landsins í sumar með fulla
spena af Chardonnay og nú þetta nýja hvítvín
úr d'Arenberg smiðjunni áströlsku, The
Stump Jump Lightly Wooded Chardonnay.
Það er dæmigert
fyrir okkar stefnu að þegar við fórum að
flytja inn vín frá d'Arenberg létum við
Chardonnay vínin þeirra alveg eiga sig.
En þetta er einfaldleg
of gott.
Eða eins og Gestgjafinn orðar
það:
"Hér blandast saman
örlæti ástralskra vína við fágun
Chardonnay og er útkoman stórskemmtilegt vín,
laust við dæmigerðar ástralskar ýkjur".
(Lestu
allan dóminn)
Vínið er algjört
sælgæti með hvítlauksgrilluðum
Jöklableikjum frá Hala í Suðursveit.
Létt ristaður og svolítið smjörkenndur
keimur vínsins smellpassar með þeim bleiku.
The
Stump Jump Lightly Wooded Chardonnay 2008 kostar 2.120 kr.
og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu,
Kringlunni og Skútuvogi.
Lestu
nýjustu fréttir af d'Arenberg víngerðinni»
Beljan
lækkar í verði !!!
Það
tók okkur smávegis tíma að sannfæra
Beljuna
um að það væri sniðugt að lækka
á henni verðmiðann.
Hún er svolítið
snobbuð þessi elska.
Henni finnst hún vera meira
virði en önnur kassavín.
Við sögðum henni að
þrátt fyrir að hún væri æðisleg
þá þyrfti stundum meira til. Lækkað
verð myndi gera það að verkum að fleiri
fengju að njóta hennar og hún væri þannig
að setja sitt mark á baráttuna gegn verðhækkunardrauginum.
Nýtt verð samkvæmt
samkomulagi er 5.490 kr.
Báðir litir (rautt
og hvítt),
sama verð.
Fæst í Vínbúðunum
Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.
Beljan
baular á Facebook »
|