Í næstu viku kemur ný sending frá La Spinetta í Piemonte héraði á N-Ítalíu.
Hún var sótt með trukki, keyrð til Danmerkur og er í þessum skrifuðu orðum að rugga sér yfir Atlantshafið með Eimskip. Við hugsum vel um vínin okkar og er þessi flutningur því hitastýrður alla leið við 15°C.
Þetta er líka sérstaklega verðmæt sending og gómsæt. Öll vínin frá La Spinetta í sendingunni eru úr Nebbiolo þrúgunni, þrjú svokölluð Barbaresco vín, eitt Barolo vín og eitt sem heitir einfaldlega Nebbiolo eftir þrúgunni.
Hið síðastnefnda fjalla ég um síðar en það mun fást í Vínbúðunum. Hin er hægt að sérpanta.
Ég var himinlifandi þegar ég smakkaði 2004 Barbaresco vínin þrjú frá La Spinetta á Vinitaly í vor (lestu um smakkið ). Það koma mér nefnilega á óvart hversu opin og ilmrík þau voru miðað við að vera svo ung og glæsileg í alla staði. Hinn rómaði 2001 árgangur var mun lokaðri á þessu stigi og hinn heiti 2003 þótt safaríkur væri hafði kannski ekki jafn glæsilega byggingu. Eða eins og hún Anja, starfsmaður La Spinetta, sagði mér — 2004 vínin eru dálítið eins og það besta af þessum tveimur árgöngum 2001 og 2003. Ég setti upp gáfulegan svip og sagðist vera henni hjartanlega sammála.
Barbaresco vínin eru sem fyrr sagði þrjú, Barbaresco Valeirano 2004, Barbaresco Gallina 2004 og Barbaresco Starderi 2004.
Verð 8.000 kr. flaskan.
Einnig fáum við 12 magnum flöskur (1.500 ml) af Barolo Campe Riserva 2001. Við höfum flutt inn Barolo Campe 2001 sem er eina Barolo-ið frá La Spinetta, en Riservan er sérstök því hún er einungis framleidd í magnum flöskum auk þess að í hana fara sérvaldar þrúgur úr þeim sem fara í "venjulega" Barolo-ið — og voru þær nú sérvaldar fyrir.
Verð 19.500 kr. flaskan.
Sendu okkur tölupóst á vinogmatur@vinogmatur.is eða svaraðu þessum tölvupósti til að láta taka frá fyrir þig.
Lestu meira um La Spinetta á heimasíðunni þeirra
![]()
Áttu vin sem safnar góðu víni?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Þeir á veitingastaðinum Vín og skel eru með fiskmarkað í portinu sínu við Laugaveginn á hverjum laugardegi í sumar. Það er hægt að kaupa íslenskan krækling.
Ég eldaði hann um helgina og notaðist við einfalda og góða uppskrift.
Kíktu á uppskriftina á blogginu
Við drukkum með Sauvignon Blanc St. Valentin 2005 frá San Michele Appiano. Það kostar 2.890 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
Grecante 2005 fær 4 glös í nýjasta Gestgjafanum sem var að detta inn um lúguna og The Stump Jump 2005 rauðvínið fær 3 1/2 glas.
![]()
Það byrjaði allt með 2003 árganginum af The Laughing Magpie. Viðtökurnar voru ótrúlegar, bæði í íslensku pressunni og í Vínbúðunum.
Nú er það 2005 árgangur sem kominn er í hillur Vínbúðanna. Hann gefur hinum fyrri ekkert eftir.
Robert Parker gefur 2003 árganginum nefnilega "bara" 90 stig en 2005 ein 93 stig.
Nýr árgangur af The Dead Arm er sömuleiðis fáanlegur, 2004. Parker gefur honum 95 stig.
Lestu allan dóminn hans Parker um þessi tvö vín
The Laughing Magpie fæst í stærri Vínbúðunum á 2.100 kr. The Dead Arm
kostar 3.500 kr. og þarf að sérpanta það með því að hafa beint samband við Vínbúðirnar eða senda okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is og við önnumst það fyrir þig.
Lestu meira um The Laughing Magpie 2005 á vefsíðu d'Arenberg
Lestu meira um The Dead Arm 2004 á vefsíðu d'Arenberg
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.