Vín & matur

Vínpósturinn, 17. janúar

Poggio Belvedere
VESPA kynning og vín frá okkur
Vínkeðjan — Þorri bloggar um The Footbolt
Hugleiðing um áströlsk vín

Poggio Belvedere frá Arnaldo Caprai

Ég hef alltaf verið hrifinn af svona rauðvínum frá Ítalíu sem hægt er að eiga í eldhúsinu og brúka með góðri, hversdagsmatargerð. Lasagna, pasta, pizza, kjúklingur, samlokur, grillmeti — mann langar yfirleitt ekki í neitt of þungt til að drekka með.

Poggio Belvedere frá Arnaldo Caprai er slíkt hversdags-vín. Caprai er samt enginn aukvisi þegar að víngerð kemur og vínið hans ekki eins og hversdags-vín frá hverjum sem.

Poggio Belvedere 2005 er ferskt og þurrt matarvín með skemmtilegum sveitasjarma sem beintengir manna við uppruna vínsins, Úmbría-héraðið á Ítalíu. Nafn þess þýðir "hæð þar sem er fagurt útsýni" og hver veit nema það sé hægt að horfa alla leið til Úmbríu eitt augnablik þegar maður sýpur á því.

Poggio Belvedere 2005 fæst á öllum bensínstöðvum, nei ég meina í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.690 kr.

 

 

 

 

Áttu góðan vin sem drekkur ítölsk rauðvín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

VESPA kynning og vín frá okkur

Vespurnar eru komnar til Íslands.

Kíktu á www.vespur.is

Þú ert boðinn á kynningu næsta þriðjudag kl. 18.00 til 20.00 í Saltfélaginu.

Ég verð með létt vínsmakk á meðan.

Vínkeðjan — Þorri bloggar um The Footbolt

Þorri hjá Hringbroti bloggaði um The Footbolt fyrir skömmu.

Smelltu hér til að lesa hvað honum finnst

Hugleiðing um áströlsk vín

Hér er stutt hugleiðing bloggarans um áströlsk vín í kjölfar greinar sem birtist í breska víntímaritinu Decanter þar sem var spurt í fyrirsögn: "Er ekki tími til kominn að taka áströlsk vín alvarlega?".

Ef þú nennir ekki að lesa hana þá birtist hún stytt hér fyrir neðan:

"Okkur finnst líka áströlsk rauðvín góð!"

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.