2006 árgangur á Ítalíu virðist almennt ætla að vera einstaklega góður. Vínframleiðendur sem ég hitti á Vinitaly vínsýningunni apríl síðastliðinn voru á einu máli um það. Hvítvínin frá 2006 eru þegar byrjuð að koma til landsins en eitthvað er í fyrstu rauðvínin.
Þegar saman koma topp árgangur, leiðandi framleiðandi og ein áhugaverðasta hvítvínsþrúgan er í lagi að veita því svolitla athygli.
Riesling Montiggl 2006 frá San Michele Appiano kemur frá vínekrum í um 400m hæð í nágrenni við vatnið Montiggl við rætur Alpanna. Eins og nafnið bendir til kynna er vínið að öllu leyti úr Riesling þrúgunni og ekki bara hvaða Riesling þrúgum sem er heldur sérvöldum gæðingum enda úr svokallaðri "cru" línu framleiðandans. Það er tært með gulgrænni slikju, ilmríkt og einstaklega ljúft að drekka.
Þegar við heimsóttum framleiðandann fyrir skömmu (lestu um heimsóknina) var boðið upp á það í fordrykk og nú er það mætt hingað til landsins og bíður eftir að komast á séns.
Kostar 2.160 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni — ath. að þýskt nafn framleiðandans stendur á miðanum, St. Michael Eppan, þar sem þeir sprechen Deutsch svo norðarlega á Ítalíu frekar en nokkuð annað.
Lestu um Riesling þrúguna á wikipedia
Lestu um Riesling þrúguna á vef Vínbúðanna
Kíktu á vefsíðu framleiðandans San Michele Appiano
![]()
Áttu vin sem vill kynnast Riesling Montiggl?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
d'Arenberg bauð mér þessa tvo gömlu árganga úr safni sínu, 1998 og 1999.
Þegar mér stendur slíkt til boða frá framleiðendum mínum slæ ég nánast undantekningalaust til því tækifærið að komast í þroskuð vín gefst ekki svo oft.
Vínin sem um ræðir eru tvö af toppvínum framleiðandans, hið fyrra úr GSM þrúgunum en hið síðara hreint Cabernet Sauvignon.
The Ironstone Pressings GSM 1998 — 92 stig Robert Parker
The Ironstone Pressings GSM 1999 — 93 stig Robert Parker
The Coppermine Road Cabernet Sauvignon 1998 — 95 stig Robert Parker
The Coppermine Road Cabernet Sauvignon 1999 — 95 stig Robert Parker
Hver flaska kostar 4.400 kr. og vert er að taka fram að aðeins 6 flöskur eru til af hvoru víni af 1998 árgangi en 24 af hvoru víni af 1999 árgangi.
Áhugasamir vinsamlegast sérpantið með því að svara þessum tölvupósti eða senda okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is
Alveg rétt, ég ætla að láta skemmtilegan d'Arenberg upptakara fljóta með í hverri sérpöntun.
Ég minni á að einnig má sérpanta hjá okkur nýjasta árganginn The Ironstone Pressings 2004 (94 stig Robert Parker) auk The Dead Arm 2004 (95 stig Robert Parker) á 3.500 kr.
![]()
Rauðvínið Chateau de Flaugergues frá S-Frakklandi er heitt, mjúkt og aðgengilegt vín.
Það hefur verið eitt okkar vinsælasta vín síðasta árið og vantar nú aðeins herslumuninn upp á að það komist í kjarna Vínbúðanna þar sem því verður dreyft í fleiri Vínbúðir í a.m.k. eitt ár héðan í frá.
Öll aðstoð er vel þegin.
Chateau de Flaugergues 2004 kostar 1.750 kr. og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
Takk.
Segðu okkur endilega hvað þér finnst um þetta vín með því að setja inn athugasemd hér á blogginu
![]()
Chianti 2005 frá Querceto hlýtur 86 stig í Mbl.
Smelltu hér til að lesa allan dóminn
![]()
Bestu kveðjur,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.