Vín & matur

Vínpósturinn, 13. september 2007

Útsalan slær í gegn
Góð umfjöllun í Gestgjafanum

Útsalan slær í gegn

Við erum í skýjunum yfir því hversu vel þið hafið tekið úsölunni okkar og þökkum innilega þessi jákvæðu viðbrögð.

Tveir þriðju útsöluvínanna eru farnir, samtals 755 flöskur, og það berast ennþá pantanir.

Það er rétt að benda þeim á sem eru ennþá að hugsa um að næla sér í útsöluvín að fjögur þeirra eru uppseld. Eftir standa hins vegar 5 áhugaverð rauðvín frá Spáni og S-Frakklandi sem rétt er að gefa gaum.

Lascaux (Frakkland) - 1.300 í stað 1.600 kr.
Lou Maset (Frakkland) - 1.300 í stað 1.600 kr.
Oncle Charles (Frakkland) - 1.100 í stað 1.350 kr.
Orobio Rioja (Spánn) - 1.350 í stað 1.600 kr.
Laderas (Spánn) - 1.200 í stað 1.450 kr.

5% aukaafsláttur fæst af útsöluverði þeirrar tegundar sem keypt er af í kassavís (12 fl.)

Lascaux er kryddað og ávaxtaríkt rauðvín sem nýlega hlaut 89 stig í Wine Spectator og nafnbótina Smart Buy. Það líkist Lou Maset að ýmsu leyti enda ekki bara frá nágrannasvæði heldur deila þau með sér þrúgunum Grenache og Syrah. Hið fyrra er öllu mildara og mýkra en hitt aðeins jarðbundnara enda framleitt á lífrænan og bíódýnamískan hátt. Þótt Oncle Charles sé í nágrenninu eru allt aðrar þrúgur í því, Cabernet Sauvignon og Merlot. Það er léttast útsöluvínanna, frískt og glaðlegt.

Orobio Rioja og Laderas koma bæði frá Artadi framleiðandanum á Spáni sem er einn sá heitasta þar um þessar mundir. Bæði vínin leggja áherslu á ferskleika og eru hentug með ýmis konar smáréttum og fjölbreyttri matargerð. Laderas fær 90 stig hjá Robert Parker.

Pantaðu með því að svara þessum tölvupósti eða senda okkur línu á vinogmatur@vinogmatur.is. Lágmarkspöntun er 12 flöskur (1 kassi).

Áttu vin hefur áhuga á víni?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Góð útkoma í nýjasta Gestgjafanum

Það er gaman að flytja inn vín þegar að þið sem njótið þeirra með okkur eruð ánægð.

Dominique og Eymar eru einmitt ánægð með vínin okkar í nýjasta Gestgjafanum.

Undir fyrirsögninni "Nýtt í Reynslu" fjalla þau um vín sem eru nýbyrjuð í sölu í Vínbúðunum. Ný vín eru til reynslu og við köllum þau stundum reynsluvín. Reynsluvín fást að jafnaði eingöngu í Heiðrúnu og Kringlunni. Öllum reynsluvínum langar til að verða kjarnavín sem þýðir að þau hafa þá selst í viðunandi magni á reynsluárinu til að skipa sér varanlegri sess í fleiri Vínbúðum. Magnsala skiptir öllu máli til þess að ná því markmiði sem útskýrir hvers vegna yfirleitt eingöngu ódýr keyrsluvín flytjast úr reynslu í kjarna og hvers vegna úrvalið er víða svo fábrotið í smærri Vínbúðum.

Vín og matur forðast normið og við viljum vín sem eru áhugaverð. Þau eru framleidd á hátt sem gerir þau að jafnaði dýrari en keysluvínin sem útskýrir hvers vegna þau ná sjaldnast úr reynslu yfir í kjarna heldur hætta í sölu eftir eins árs reynslutímabil í Heiðrúnu og Kringlunni. Smelltu hér til að sjá hvaða vín við eigum í kjarna

Heiðrún og Kringlan eru því þær búðir sem bjóða upp á langmest spennandi úrvalið og mælum við með til flestra að beina viðskiptum sínum þangað.

En aftur að Gestgjafanum.

Cúmaro Riserva 2004 frá Umani Ronchi fer fremst þeirra vína sem fjallað er um undir "Nýtt í reynslu" í nýjasta Gestgjafanum og fær 4 1/2 glas. Og næst fremst í flokki fer Emporio 2006 hvítvínið sikileyska með 4 glös sem er stjörnueinkunn fyrir svo ódýrt vín.

Á öðrum stað í blaðinu (efst á blaði), undir fyrirsögninni "Eitt vín - einn réttur" fær Emporio rauðvínið svo 4 1/2 glas en sú einkunn er ekki fyrir vínið eitt og sér (það fékk þá áður 3 1/2 glas - lestu dóminn ) heldur miðast við hversu vel vínið á við réttinn í greininni, Osso Bucco. Uppskriftina gefur Gunni Palli á Vínbarnum (bls. 62-3) og eru síðan nokkur sikileysk rauðvín pöruð með réttinum og er óhætt að segja að samanburðurinn sé Emporio afar hagstæður.

Lestu alla umfjöllunina í Gestgjafanum á blogginu

Cúmaro Riserva 2004 kostar 2.590 kr. og Emporio vínin kosta bæði 1.390 kr.

Þau fást eingöngu í Heiðrúnu og Kringlunni.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.