Systurnar í Kokku á Laugaveginum verða með opna búð á sunnudaginn og ætlum við að stelast inn kl. 16.00 og taka upp nokkur gler.
The Hermit Crab frá d'Arenberg (hvítvín, Ástralía)
Vitiano Bianco frá Falesco (hvítvín, Ítalía)
Vitiano Rosso frá Falesco (rauðvín, Ítalía)
Santagostino Rosso frá Firriato (rauðvín, ítalía)
The Hermit Crab er gott hvítvín í fjölbreytta jólamatargerð því það er höfugt og bragðmikið með sérstakan karakter sem gerir jólaupplifunina einstakari. Vitiano Bianco er svo ekta létt og ferskt hvítvín með salatinu eða forréttinum og til að drekka þegar maður þráir að taka sér smá hlé frá jólasteikunum og rauðvínsboltunum. Vitiano Rosso er eitt fjölhæfasta rauðvínið okkar, fyrir utan að vera ein bestu kaupin. Santagostino er svo jóla-jólavínið, bragðmikið, áfengisríkt og sultað til að taka á þeirri fjölbreyttu matarsamsetningu sem prýðir flest borð yfir hátíðarnar.
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Vitiano Rosso og Vitiano Bianco (ath. smökkuð í Kokku á sunnudaginn) koma frá Falesco í Umbria héraðina á Ítalíu.
Parker elskar þau eins og fram kemur í þessu stutta viðtali við Business Week.
![]()
Það er eiginlega ótrúlegt að ég hafi setið á mér allan þennan tíma síðan vínpósturinn fór fyrst í loftið (fyrir þremur árum síðan) og ekki minnst einu orði á Ennio Morricone, kvikmyndatónskáldið ítalska (hlustaðu á dæmi).
Hann hefur nefnilega verið í dálitlu uppháhaldi hjá mér.
Í boði góðs vinar sem býr í London fórum við fjórir félagar á Ennio Morricone tónleika og út að borða á eftir á Zafferano.
![]()
Ein matskeið af The Footbolt, tvær matskeiðar af Chianti Classico ...
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.