Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 6. nóvember 2008

Sendur aðra hvora viku
til 718 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Freyðandi Moscato frá Lini , tvöfalt Vín mánaðarins í Gestgjafanum og Bingó! — áskrifendur að Vínpóstinum fleiri en 700 og vinningur stækkar

Freyðandi Moscato frá Lini á 1.390 kr.

Við fjölluðum um Lambrusco frá Lini ekki alls fyrir löngu hér í Vínpóstinum. Ekki verksmiðjuframleitt Lambrusco heldur alvöru, hefðbundið, þurrt og berjaríkt Lambrusco eins og Ítalir vilja hafa það.

Því hefur verið vel tekið hjá þeim sem hafa prófað og við viðurkennum með ánægju að Lambrusco Scuro frá Lini er mest drukkna vínið á okkar bæ síðan það kom í sumar. Við drekkum það með lasagna og ýmsum öðrum pastaréttum og ekki síst heimalagaðri föstudags-pizzu.

Gestgjafinn er okkur sammála því í nýlegu tölublaði velur hann það Bestu kaupin og gefur því fjögur glös (lestu dóminn).

En við ætluðum ekki að tala um þetta vín heldur annað vín, ekki síður gott, frá sama framleiðanda.

Lini er nefnilega freyðavína-séní. Þarna eru framleidd freyðivín í kampavínsstíl, freyðandi Lambrusco í öllum litum og vínið sem við fjöllum um í dag Moscato Spumante.

Moscato Spumante er eins og nafnið gefur til kynna úr þrúgunni Moscato og minnir svolítið á freyðivínin frá Asti úr sömu þrúgu. Moscato Spumante er hins vegar ferskara og að okkur mati talsvert betra en bestu Asti freyðivín sem hér fást.

Áfengismagnið er einungis 6% og vínið því mjög auðdrekkanlegt. Sætleikinn gælir mátulega við bragðlaukana og verður aldrei væminn þar sem sýran og freyðandi bólurnar halda því fersku og lifandi.

Allar konur sem við vitum til að hafi prófað vínið hafa fallið fyrir því en við leggjum karlmennskuhlið fyrirtækisins að veði og lýsum því yfir að vínið falli jafnt báðum kynjum.

Moscato Spumante frá Lini kostar 1.390 kr. og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni. Best vel kælt — það er ljómandi gott eitt og sér, sem fordrykkur með eða án smárétta, eða með jóla-smákökuátinu sem framundan er.

Kíktu á nýja og svala vefsíðu Lini framleiðandans »

Tvöfalt Vín mánaðarins í Gestgjafanum

Við höldum áfram að monta okkur af góðum dómum á síðum Gestgjafans.

Í nýjasta Gestgjafanum er The Footbolt 2004 frá d'Arenberg valið Vín mánaðarins og hlýtur þar afskaplega vænlega umsögn ef hægt er að kalla yfirlýsingar eins og "frábært vín" vænlegar.

Þetta gerðist eingöngu tveimur tölublöðum eftir að annað af okkar vínum, rauðvínið St. Laurent Reserve 2006 frá Hubert Sandhofer, var líka valið Vín mánaðarins í tímaritinu.

Lestu alla umsögn Gestgjafans um þessi tvö vín

Þótt við förum eiginlega hjá okkur yfir öllum þessum góðu viðtökum sem vínin okkar hafa fengið í Gestgjafanum undanfarið þá kvörtum við ekki.

Hér fyrir neðan er listi yfir nýjastu dóma okkar vína í tímaritinu:

d'Arenberg The Footbolt 20044 1/2 glas Vín mánaðarins
Sandhofer St. Laurent Reserve 20064-4 1/2 glas Vín mánaðarins
Lini Lambrusco Scuro 2007 4 glös Bestu kaupin
Arnaldo Caprai Anima Umbra Rosso 20064 glös
Arnaldo Caprai Anima Umbra Bianco 20074 glös
Sandhofer Grüner Veltliner 20074 glös
Sandhofer Rosando 20064 glös
Falesco Tellus 20064 glös
Umani Ronchi Pecorino 20073 1/2 glas

Fleiri dómar á blogginu »

Bingó! — Áskrifendur að Vínpóstinum er orðnir fleiri en 700 og vinningurinn hefur bólgnað út

Áskrifendur að Vínpóstinum eru orðnir fleiri en 700 og þá er eins gott að standa við stóru orðin.

Einn heppinn áskrifandi verður dreginn úr þeim hundrað sem bættust við eftir þeir urðu 600, þ.e.a.s. dregið verður úr hópi nýrra áskrifenda frá 601 til 700.

Vinningshafi verður tilkynntur innan skamms.

Og hér var að bætast við áríðandi frétt:

Vinningurinn hefur bólgnað út og inniheldur nú ekki aðeins vínsmökkun í boði hússins heldur ætlar veitingastaðurinn La Primavera að leggja til fingurfæði til að narta í með vínunum í vínsmakkinu.

Miðað við þá öru fjölgun sem hefur átt sér stað undanfarið (áskrifendur eru nú 718) verður ekki langt að bíða þar til dregið verður aftur í happdrættinu og þá úr nýjum áskrifendum frá 701 til 800.

Meira um Vínpóstinn »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Vínframleiðandi vikunnar

Val St. Laurent Reserve sem Vín mánaðarins í Gestgjafanum kórónaði frábæra útkomu tríósins frá Sandhofer á síðum tímaritsins því áður höfðu hvítvínið Grüner Veltliner og rósavínið Rosando hlotið 4 glös.

Vínin eru með myndlist Kristínar Gunnlaugsdóttur og munu væntanlega fást öll þrjú saman í gjafaöskju í Vínbúðunum yfir hátíðarnar.

Meira um Hubert Sandhofer  »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Það er fátt notalegra en hugmyndin um það að jólabókaflóðið verður á sínum stað þessi jól.

Því má treysta.

Kíktu á hvaða bækur eru vinsælastar

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst fyrir helgi og spurði hvort það væri satt að vín væru að hækka um 25% í Vínbúðunum.

Okkar svar: Nei, nei Sigurjón minn, þetta eru óþarfa áhyggjur. Það hefur ekki átt sér stað almenn hækkun í Vínbúðunum upp á 25% heldur má segja að hún hafi í heildina verið nær 5%. Einhver vín hafa þó sannarlega hækkað töluvert mikið síðustu mánaðarmót vegna veikingar krónunnar en önnur alls ekki neitt. Fyrir utan eitt hafa öll okkar vín staðið í stað og munu gera svo fram yfir jól. Lestu meira ...

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.