Thomas Keller er bandarískur verðlaunakokkur. Hann rekur m.a. veitingastaðina French Laundry í Kaliforníu og Per Se í New York sem báðir hafa 3 Michelin stjörnur.
Það er ekki amalegt að fá sýnikennslu frá honum.
Í þessu vídeói sýnir hann okkur hvernig hann býr til Gnocchi með dijon sinnepi, osti og fullt af fersku kryddi. Gnocchi er ekki beinlínis pasta þótt það sé mjög skylt enda uppistaðan í því hveiti eða önnur sterkja eins og kartöflur eða brauð. Ítalskt að sjálfsögðu en útfærslan hans Keller er frönsk. Hann gerir síðan sveppa- og graskerssósu út á gnocchi-ið í öðru vídeó.
Þessi vídeó fann ég á Epicurious vefsíðunni en við vorum að bæta tengli á hana á bloggsíðunni okkar undir uppskriftir.
Og hvað á að drekka með?
Þótt gnocchi sé ítalskt að uppruna og þessi útfærsla frönsk ætla ég að mæla með ástralska hvítvíninu Hermit Crab frá d'Arenberg. Það er samsett úr s-frönskum þrúgum, Marsanne og Viognier, og kinkar því kolli til Frakklands. Það hefur skemmtilega blómlegan ilm og all góða þyngd og kraft til að takast á við allt smjörið, olíuna og villta krydd- og sveppabragðið af þessum rétti.
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Gestir eru góðir.
Við ætlum að bjóða gestum að skrifa öðru hvoru skemmtilegar færslur á bloggsíðuna okkar.
Gestabloggið gengur út á það að senda okkur forvitnilega sögu, t.d. ferðasögu til vínlanda, veitingahúsameðmæli, uppskrift eða ýmsar góðar vangaveltur aðrar um vín og mat og við birtum hana síðan á blogginu. Þær þurfa ekki að vera langar.
Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is til að láta okkur vita af góðri hugmynd og ef hún hentar væri það okkur ánægja að birta hana á blogginu.
Þetta er slóðin fyrir bloggsíðuna:
http://vinogmatur.wordpress.com
![]()
Dead Arm 2004 frá d'Arenberg og Barolo Cannubi Boschis 2001 frá Luciano Sandrone eru valin á lista Decanter tímaritsins yfir bestu rauðvín ársins 2006.
Lestu alla umsögn Decanters um þessi vín á blogginu
![]()
Vinography bloggsíðan sem ég kíki reglulega á hlaut nýlega viðurkenningu sem besta vínbloggið.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.