Vín & matur

Vínpósturinn, 9. ágúst 2007

Límmiðar — 2. umferð
Gary heimsækir Conan
Emporio rauðvínið í Gestgjafanum
Hollywood gerir kvikmyndir um vín og mat

Límmiðar — 2. umferð

Undanfarið ár höfum við og vinir okkar í Vöruhótelinu bisað við að líma límmiða á næstum hverja einustu flösku sem við flytjum inn og seljum í Vínbúðirnar. Skoðaðu miðana 12

Nú erum við búin með fyrsta skammtinn og ný umferð fer í prentun bráðlega.

Hann Einar Geir hjá Íslensku Auglýsingastofunni, sem átti heiðurinn af fyrstu syrpunni, hefur hannað 6 nýja miða (sjá mynd) og ætlum við að velja einn þeirra til prentunar. Það verða því ekki lengur 12 ólíkar miðar í gangi heldur aðeins einn en við útilokum alls ekki í framtíðinni að leika okkur frekar með þennan ágæta miða og hugsanleg mótíf.

Okkur þætti mjög vænt um ef þú tækir þér eina mínútu í að segja okkur hver þessara 6 þér finnst bestur með því að skrifa það í athugasemd á blogginu okkar.

Smelltu hér til að skoða tillögurnar 6 á blogginu og senda okkur athugasemd

Takk.

ps. ekki láta þér bregða að sjá ómerktar flöskur frá okkur á meðan millibilsástand ríkir.

 

Áttu vin sem þér þykir vænt um?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Gary heimsækir Conan

Vínspekúlantinn með rosalega eftirnafnið, Gary Vaynerchuk, heimsótti Conan O'Brian fyrir skömmu til að halda vínsmökkun í þættinum.

Smelltu til að skoða myndræmuna frá heimsókninni

Þetta er frekar fyndið.

Emporio í Gestgjafanum

Sikileyska rauðvínið Emporio fékk fínustu umfjöllun í nýjasta Gestgjafanum. 3 1/2 glas.

Smelltu til að lesa allan dóminn

Hollywood gerir kvikmyndir um vín og mat

Vín og matur er í uppáhaldi hjá kvikmyndagerðarmönnum í Hollywood.

Lestu um þessar tvær kvikmyndir sem eru í bígerð um 1976 vínsmakkið í París og rottuvínið frá Disney.

Bestu kveðjur,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.