Í síðasta tölvupósti fjallaði ég um systkynavínin Vitiano frá Falesco í Umbria á M-Ítalíu. Annað rautt og hitt hvítt.
Nú eru það tvö önnur ítölsk systkynavín sem mér fannst rétt að minna á að eru aftur fáanleg þar sem þau eiga sér marga aðdáendur á þessum póstlista. Þau koma frá Firriato víngerðinni á Sikiley sem er einfaldlega ein sú besta á þeim slóðum.
Santagostino Rosso 2002 er búið til úr þrúgunum Shiraz og Nero d'Avola. Það er dökkt, bragðmikið, þroskað, þétt og mjúkt í munni. Hentar vel með villibráð og steikum.
18/20 "heitur ávöxtur en hreinn og þéttur" Mbl. Lestu allan dóminn
Santagostino Bianco 2005 úr Chardonnay og Cataratto sameinar ferska eiginleika ítalskra hvítvína, rjómakennda mýkt og daufa eikatóna í fjölhæfu víni sem getur gengið bæði í hlutverk ítalskra vína og eikaðra Chardonnay vína. Eitthvert best heppnaða hvítvín sem við flytjum inn, ár eftir ár.
18/20 "Rjómamjúkt í nefi sem munni" Mbl. Lestu allan dóminn
Bæði kosta 1.790 kr. og fást í Heiðrúnu og Kringlunni
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()

Framleiðendur okkar Fontodi og Castello di Querceto í Chianti Classico í Toskana fá flottar einkunnir í októberhefti bandaríska víntímaritsins Wine Spectator fyrir Chianti Classico vínin sín.
Fontodi Chianti Classico 2004 - 88 stig "Juicy"
Castello di Querceto Chianti Classico 2004 - 88 stig "Nicely done"
Castello di Querceto Chianti Classico Riserva 2003 - 90 stig "Wonderful perfumes"
Castello di Querceto Chianti Classico Riserva Il Picchio 2003 - 91 stig "Classy aromas"
Riservað frá Castello di Querceto fékk jafnframt heiðursnafnbótina "Smart Buy".
Smelltu hér til að lesa nánar á blogginu hvað tímaritið skrifaði um þessi fjögur vín
![]()

Mér fannst rétt að láta hina fjölmörgu aðdáendur Chateau de Flaugergues vita að nýr árgangur, 2004, fór upp í ÁTVR á mánudaginn sl. Eitthvað ætti þó að vera eftir af 2003 uppí hillum vínbúðanna í Kringlunni og Heiðrúnu fyrir þá sem vilja tryggja sér síðustu flöskurnar af því gæðavíni.
Það er óþarfi að hafa miklar áhyggjur, 2004 er alveg eins góður og verðið er hið sama, 1.750 kr.
Árgangarnir eru þó nokkuð ólíkir. 2003 var heitt, sultað og kryddað með 14.5% áfengismagn en 2004 er ferskara og fágaðra með "aðeins" 13.5%.
![]()
Eitthvað klúðraðist hlekkurinn í síðasta pósti yfir á Amedei smakkpakkana þannig að ég setti þá alla 6 á bloggið.
Smelltu hér til að fara yfir listann og skoða verðin
Til að panta Amedei smakkpakka er nóg að senda okkur línu á vinogmatur@internet.is
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.