Vín & matur

Vínpósturinn, 1. mars 2007

Vínsmökkun á LA PRIMAVERA
Lou, Lou, Lou, viltu vera memm?
Aukning í vínsmökkunum

Vínsmökkun á La Primavera — 7 vín sem hafa breytt Ítalíu

Laugardaginn 10. mars kl. 14.00 ætlum við að endurtaka leikinn frá því í fyrra og hafa vínsmökkun á veitingastaðinum La Primavera.

25 ánægðir gestir mættu í fyrra og smökkuðu eðalvín frá Piemonte héraðinu á Ítalíu (skoðaðu myndirnar frá smökkuninni).

Í þessari smökkun verða vínin hins vegar héðan og þaðan af stígvélinu, allt frá tánni upp til Alpanna.

Þau eiga það sameiginlegt að vera í hópi þeirra 50 vína sem Gambero Rosso segir að hafi breytt Ítalíu.

Þau eru 7 vín sem hafa breytt Ítalíu.

Smelltu hér til að sjá vínlistann

Sem fyrr verður létt snarl í boði með vínunum auk þess sem Leifur ætlar að útbúa í lokin einn rétt úr AMEDEI súkkulaði. Með honum verður boðið upp á sætvín frá Arnaldo Caprai úr Sagrantino þrúgunni.

Verðið er 4.500 kr. per gest. Vinsamlegast svarið þessum pósti eða sendið okkar tölvupóst á vinogmatur@internet.is til þess að taka frá sæti.

 

 

 

Áttu vin sem fannst DaVinci Code góð?
Smelltu þá hér til að áframsenda á hann þennan póst

Lou, Lou, Lou, viltu vera memm?

Lou Maset 2004 er lífrænt, bíódýnamískt, ferskt og skemmtilegt vín frá S-Frakklandi.

Þú hefur engu að tapa.

Nema svona 1.600 kr.

Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.

 

 

Aukning í vínsmökkunum

Vínsmökkun hér og vínsmökkun þar.

Undirritaður sló nýtt met í vínsmökkunum í heimahúsum og á vinnustöðum í febrúarmánuði.

Lestu bloggið

Þeir sem kjósa frekar að sjá um vínsmökkunina alveg sjálfir geta skoðað þetta lesefni frá Decanter.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.