Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 31. júlí 2008

Sendur aðra hvora viku
til 670 tryggra áskrifanda

Í þessum Vínpósti: Svalandi Lambrusco, Alicia Lini í viðtali alls staðar, Gestgjafinn heimsækir Caprai og Vínkeðjan: Unnur María bloggar um Montefalco

Svalandi Lambrusco frá Lini

Maður á líklegast ekki að vera að skrifa Vínpóst þegar úti eru 23 gráður og ekki hnoðri á himni en tilefnið er gott og sérstaklega viðeigandi — svalandi!

Nýtt Lambrusco er nefnilega komið í hillur Vínbúðanna. Það kemur frá Lini sem er lítið fjölskyldufyrirtæki að okkar skapi. Þeirra Lambrusco er hefðbundið í góðum skilningi þess orðs, þ.e.a.s. ekki væminn og sætur djús heldur vel þurrt og mikið freyðandi með fallegum, djúp-vínrauðum lit.

Þú trúir ekki hvað það er gott fyrr en þú hefur smakkað það.

Það er næstum óþarfi að taka fram að Lambrusco eins og þetta er sérstaklega heppilegt í hita sumarsins. Kjörið fyrir alla þá sem finnst Lambrusco gott og alla hina sem héldu að Lambrusco gæti aldrei verið gott.

Verð 1.690 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni.

Áfengismagnið er aðeins 11%. Flaskan klárast allt of hratt svo keyptu tvær.

Ok! við játum — við kolféllum fyrir miðanum líka.

Lestu um Lambrusco á Wikipedia »

Alicia Lini í viðtali alls staðar

Lini er einn heitasti litli framleiðandinn á Lambrusco vínum í dag og rataði nýlega í Men's Vogue.

Það var hún Alicia Lini og er myndin hér til hliðar tekin af því tilefni.

Bumbubúinn sem sést þarna á myndinni kom í heiminn í vor og heilsast vel, eflaust vel marineraður af Lambrusco — nei, við segjum svona bara.

Lestu viðtalið við Alicia Lini í Men's Vogue

Alicia er líka í útvarpinu.

Hlustaðu líka á nýlegt útvarpsviðtal við hana sem tekið var í New York

Og —

Alicia Lini í sjónvarpsviðtali á youtube (ítalska)

Gestgjafinn heimsækir Arnaldo Caprai

Tveir blaðamenn frá Gestgjafanum, mæðginin Dominique og Eymar, héldu til Úmbría í maí síðastliðnum og heimsóttu vínframleiðandann Arnaldo Caprai.

Það eru himinlifandi með heimsóknina og fjalla ítarlega um hana í nýjasta tölublaði Gestgjafans auk þess sem að þau fjölluðu stuttlega um Caprai í tölublaðinu þar á undan.

Tvö ný vín frá Caprai hófu sölu í Vínbúðunum í vikunni, Anima Umbra rautt og Anima Umbra hvítt, en um þau verður fjallað innan skamms hér í Vínpóstinum.

Kíktu á nýja og flotta vefsíðu hjá Arnaldo Caprai »

Vínkeðjan: Unnur María bloggar um Montefalco

Unnur María er nýjasti hlekkurinn í Vínkeðjunni.

Lestu hvernig hún lýsir kvöldstund með Fjallafálkanum

Unnur María hefur skorað á Helgu Þóreyju til að halda áfram með Vínkeðjuna en Helga hefur tekið áskoruninni.

Við létum Helgu fá nýja rauðvínið frá Arnaldo Caprai, Anima Umbra, í hendurnar.

Helga er blaðamaður á Fréttablaðinu og hefur m.a. gagnrýnt veitingastaði og músík á ferlinum og nú er spurning hvað hún gefur Anima Umbra margar stjörnur.

Lestu allt um Vínkeðjuna »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum veistu að hún hefur verið valin af vandvirkni og ástríðu okkar sem flytjum hana inn frá framleiðendum sem skipta máli.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Vínframleiðandi vikunnar

Okkar vinsælast vín frá upphafi Casal di Serra er hársbreidd frá því að detta úr kjarna Vínbúðanna og því hvetjum við alla unnendur þess að muna eftir því í næstu Vínbúðarferð.

Önnur vín frá Umani Ronchi í Vínbúðunum sem stendur eru rauðvínið Cumaro Riserva og nýja hvítvínið Pecorino.

Meira um Umani Ronchi  »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Þegar kemur að því að smakka vín eru allir sérfræðingar.

Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Fallegt umhverfi, fyrsta flokks flytjendur og tónlist. Sumartónleikar í Skálholti eru fyrir löngu orðinn fastur liður í tónlistarumhverfinu.

Um næstu helgi eru það barokk-tónlist, ný íslensk tónlist og leiklistarsmiðja barnanna sem ber hæst.

Meira á sumartonleikar.is

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.