Vín & matur

Vínpósturinn, 1. febrúar 2007

Pinot Noir SMAKKPAKKI
Hvað segir Miles í Sideways um Pinot Noir?
UPPSKRIFT: Innbakaður lax með Pinot Noir
Síðustu dagar útsölunnar

Pinot Noir SMAKKPAKKI

Pinot Noir þrúgan komst í tísku í kjölfar myndarinnar Sideways þar sem vinirnir Miles og Jack óku um vínhéruð Kaliforníu og fóru á kostum. Ásamt þeim vinum var Pinot Noir í stóru hlutverki.

Búrgúnd hefur náttúrulega alltaf verið miðstöð Pinot Noir framleiðslu enda flest rauðvín þaðan eingöngu úr þeirri þrúgu. Úr henni framleiða þeir rauðvín í öllum verðflokkum en áberandi mikið af dýrum vínum og í sumum tilfellum nokkur dýrustu vín í heimi. Pinot Noir hefur því alltaf verið eftirsóknarverð þótt hún hafi ekki beinlínis verið í tísku enda er hennar hvergi getið á flöskumiðum í Búrgúnd. Það gera kanarnir hins vegar og á Vesturströnd Bandaríkjanna hefur þrúgunni vaxið fiskur um hrygg bæði hvað varðar vinsældir og gæði.

Á Ítalíu er Pinot Noir svona næstum meira hobbí (að Alto Adige héraðinu undanskildu). Ekki það að þeim takist ekki vel heldur eru þeir svo einbeittir í að rækta sínar eigin upprunalegu þrúgur í bland við nokkrar heimsþekktar eins og Merlot og Chardonnay. Aðstæður þar er líka víða óviðunandi þar sem Pinot Noir, eða Pinot Nero eins og Ítalir kalla hana (Blauburgunder í Alto Adige), vill svalt loftslag.

Vínin þrjú sem skipa þennan ítalska Pinot Noir Smakkpakka fá fyrirtaksskilyrði. Pinot Nero 2004 og Pinot Nero Riserva 2001 koma frá Appiano úr svöluðum hlíðum Alpanna. Pinot Nero Case Via 2001 blómstrar í höndum Giovanni Manetti, eigandi Fontodi í Toskana, sem ræktar það í 400m hæð þar sem vindar blása og til að forðast of mikinn hita enn frekar snúa þær vínekrur ekki í suður eins og algengt er.

Pinot Noir Smakkpakkinn kostar 7.400 kr. Sendu okkur línu til að panta (með nafni og kennitölu).

Lestu meira um Smakkpakkavínin á blogginu

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Hvað segir Miles í Sideways um Pinot Noir?

“It’s a hard grape to grow … it’s thin-skinned, temperamental, ripens early … it’s not a survivor like Cabernet, which can just grow anywhere and thrive even when it’s neglected. No, pinot needs constant care and attention … it can only grow in these really specific, little, tucked-away corners of the world. And only the most patient and nurturing of growers can do it, really. Only somebody who really takes the time to understand pinot’s potential can then coax it into its fullest expression. Then, oh, its flavors, they’re just the most haunting and brilliant and thrilling and subtle and ancient on the planet.”

— Miles í Sideways, að missa sig yfir uppáhaldsþrúgunni sinni Pinot Noir.

Innbakaður lax með Pinot Noir

Innbakaður lax var fyrsti fiskrétturinn sem við Rakel drukkum með rauðvín.

Rauðvín með fiski getur virkað mjög vel og er góður lax með Pinot Noir alveg sérstaklega góð blanda.

Fáðu uppskriftina af innbökuðum laxi á blogginu

Síðustu dagar útsölunnar

Við þökkum góð viðbrögð. Fjölmargir hafa pantað hjá okkur útsöluvín með því að senda okkur tölvupóst.

Bætum við einni viku, fram að næsta vínpósti.

Skoðaðu útsöluvínlistann

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.