
Við höfum áður flutt inn sætfreyðandi vín og hálffreyðandi vín en hér er fyrsta fullgilda freyðivínið.
Það er okkar ágæti Castello di Querceto í Toskana sem framleiðir það.
François 1er (lesist "François Premier", þ.e.a.s. "hinn fyrsti") er framleitt úr Chardonnay þrúgunni eins og svo mörg kampavín (champagne).
Það er þurrt og létt freyðandi, framleitt með sömu aðferð og kampavínin frönsku en kostar ekki nærri eins mikið.
Hvað stíl, gæði og verð varðar mætti segja að freyðivínið frá Castello di Querceto sé mitt á milli góðs kampavíns og einfalds ítalsks freyðivíns eins og prosecco.
Freyðivín eru ómissandi um áramótin — sem fordrykkur og til að skála í þegar nýja árið gengur í garð.
Og hvenær sem er þar á milli.
Freyðivín með mat, frá upphafi til enda, er líklegast best geymda leyndarmálið. Prófaðu það!
François 1er kostar 1.990 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
Áttu góðan vin sem vill drekka freyðivín um áramótin?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()

Við vorum með austurríska, hálffreyðandi hvítvínið Frizzando frá Sandhofer á okkur borðum um áramótin í fyrra.
Þetta er afskaplega ljúft vín, aðeins 11% áfengismagn, sem er gott eitt og sér en glettilega skemmtilegt matarvín sömuleiðis. Við mælum með því sem fordrykk til að slá tóninn fyrir góða stemningu framundan — en þú gætir staðið þig að því að grípa í það aftur og aftur þar til síðasti gesturinn er farinn.
Vínið var fyrst sett meðal hvítvína í Vínbúðunum en er nú komið í freyðivínshillurnar. Þar á það frekar heima því þetta er jú freyðandi vín.
Frizzando kostar 1.790 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
100 franskar ostrur hafa boðað komu sína í Ostabúðina á Skólavörðustíg fyrir helgi.
Við erum búin að láta taka frá fyrir okkur og ætlum að hafa þær í forrétt á gamlársdag. Líklegast með þessu hér.
Hafðu samband við Ostabúðina í síma 562 2772 til að tryggja þér skammt.
![]()
Takk fyrir árið sem er að líða.
Takk fyrir að taka þátt í því sem við erum að gera með því að lesa þennan póst og segja öðrum frá honum eða frá því sem við flytjum inn.
Takk fyrir að gera þér sérstaka ferð niður í Vínbúð og spyrja um okkar vín.
Án þess værum við bara að klóra í myrkri.
Við hlökkum til að halda áfram á nýju ári með góðkunningjum en líka nýjum og spennandi hlutum.
Gleðilegt nýtt ár!
Arnar og Rakel
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.