Vín & matur

Vínpósturinn, 10. janúar

Run Rig og félagar frá Torbreck
"Vín og matur" — límmiðinn rúllar af stað
Barolo 2004
Freyðivín í Gestgjafanum fá góða dóma

Run Rig og félagar frá Torbreck — sérpöntun

"Neunundneunzig Luftballons" söng hin þýska hljómsveit Nena árið 1983. 99 blöðrur.

Þetta er nú reyndar útúrdúr en væri ekki fínt ef einhverjum víngagnrýnandanum dytti í hug að gefa blöðrur fyrir vín frekar en "stig", "stjörnur" eða "glös".

99 blöðrur af 100.

"One of the world´s greatest wine estates" segja þeir hjá Parker pressunni um einn af þeirra uppáhalds framleiðendum Torbreck.

Nýjustu rauðvínin frá Torbreck komu ekki fyrir löngu til landsins. Tvö þeirra, The Struie 2005 (3.890 kr.) og Juveniles 2006 (2.390 kr.), fást í Vínbúðunum en hin þrjú er hægt að sérpanta með því að senda okkur tölvupóst (ásamt kennitölu) á vinogmatur@vinogmatur.is.

Sérpöntunarvínin þrjú eru Run Rig 2004 (13.900 kr.) sem Parker pressan gefur 99 blöðrur, The Factor 2005 (7.900 kr.) sem fær 97 blöðrur og nýtt vín The Descendant 2005 sem sömuleiðis fær 97 blöðrur (7.900 kr.).

Það gera 393 blöðrur samtals.

Smelltu hér til að lesa allan Parker dóminn á blogginu okkar

Lítið magn fáanlegt.

 

Áttu góðan vin sem hreinlega elskar áströlsk rauðvín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Nýi límmiðinn rúllar af stað

Loksins.

Eftir langt hlé.

Límmiðinn er kominn aftur á flöskurnar.

Dýramyndirnar eru farnar og í stað þeirra er kominn einn miði — einfaldur og stílhreinn.

Meira um það á blogginu

Vonandi líkar ykkur vel.

Barolo 2004

2004 árgangur af Barolo vínum kemur hingað á markað síðar í ár.

Það er gott í vændum.

Lestu meira á blogginu

Freyðivín í Gestgjafanum fá góða dóma

Freyðivínin okkar eru til umfjöllunar í Gestgjafanum.

Þau fá góða dóma.

Francois 1er frá Castello di Querceto hlýtur 4 glös (svona c.a. 90 blöðrur) og Frizzando frá Sandhofer 3 1/2 glas.

Lestu allan dóminn á blogginu

 

Njótið heil,
Arnar

http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.