Nýtt rauðvín frá Falesco komið í Vínbúðirnar
Það eru svo margar mismunandi þrúgnategundir á Ítalíu að það er ekki furða að fólk muni ekki nöfnin á þeim öllum; Verdicchio, Vernaccia, Vermentino, Aglianico, Nero d'Avola, Teroldego, Sagrantino, Sangiovese osfrv. osfrv.
Hér kemur hins vegar vín sem samanstendur af tveimur þrúgum sem flestir ættu að kannast við, Syrah og Merlot.
Tellus er nýtt vín frá galdrakörlunum í Falesco, Cotarella bræðum. Víngerðin á vínekrur í tveimur nágrannahéruðum, Úmbría og Lazio, og kemur Tellus frá því síðarnefnda.
Í Lazio er ekki mikil rauðvínshefð, þar gera menn fremur hvítvín, og því ekki nein knýjandi þörf á að fara í heðfbundnar stellingar og nota staðbundnar þrúgur eins og tíðkast í flestum öðrum héruðum landsins.
Tellus er fyrir vikið alþjóðlegra en mörg okkar ítölsku rauðvína. Liturinn er afskaplega dökkur og vínið allt fremur þykkt og ávaxtamikið. En glæsilegt er það og það nægir okkur.
Tellus 2006 kostar 1.895 kr. og fæst eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
Lambakjöt hvers konar, allt frá læri til lunda, ætti að sóma sér best með víninu og fuglakjöt á borð við önd og kalkún.
Meira um Falesco víngerðina »
Vínpósturinn er ekkert leyndarmál. Við viljum virkilega að sem flestir lesi hann.
Það hefur þegar verið gert opinbert að við stefnum á að dreifa Vínpóstinum til a.m.k. 900 áskrifenda.
Og þegar því er náð verður haldið svaka partí.
Til að rifja aðeins upp leikreglur í áskrifenda-happdrættinu sem allir eru að tala um þá drögum við út heppinn áskrifanda úr hverju nýju hundraði sem bætist við, talið frá 600 þegar að leikurinnn hófst.
Nú eru áskrifendur 669 sem er fín tala ef hún er lesin á hvolfi.
Vinningshafinn fær að launum vínsmökkun fyrir sig og sína.
Ef þú ert ánægður áskrifandi (eins or herrarnir á myndinni) væri vel þegið að sendir á félaga og samstarfsmenn og alla aðra sem þér finnast skemmtilegir, 20 ára og eldri, og hvattir þá til að skrá sig.
Hér má skrá sig á póstlistann »
4 glös í Gestgjafanum: "Rósavín með bein í nefinu" (... gott rósavín getur allt)
Að vera með bein í nefinu þykir góður eiginleiki á okkar heimili.
Lýsing Gestgjafans á Rosando 2006 frá Hubert Sandhofer í nýjasta tölublaðinu á þann veg að vínið væri "með bein í nefinu" er því mjög jákvæð, ekki síst í ljósi þess að rósavín eru almennt ekki talin hafa "bein í nefinu".
Vínið fær 4 glös í Gestgjafanum af fimm mögulegum.
Lestu allan dóminn um Rosando 2006 í Gestgjafanum
Þegar rósavín eru góð eins og þetta eru þau að okkar mati oft með matarvænstu vínum á markaðnum. Þessi rauðhvíti eiginleiki sem samanstendur af ferskleika og léttleika hvítvíns í bland við tannín og endingu rauðvíns veldur því að rósavín eins og Rosando 2006 ganga bæði í hlutverk flestra hvítvína og líka sumra rauðvína.
Fiskur af flestu tagi steinliggur, grænmeti, pasta, pizzur, hamborgarar og léttari kjöttegundir eins og kjúklingur og svínakjöt.
Gott rósavín keppir keppir ekki í bara 100m spretthlaupi, stangastökki eða spkjókasti. Gott rósavín keppi í tugþraut. Gott rósavín getur allt.
Nei, þetta er kannski full langt gengið en ...
... Gestgjafinn tekur undir þetta og kallar vínið "matarvænt" og bætir við "... en gengur eitt og sér" til að kóróna fjölhæfni þessa ágæta víns.
Kíktu á alla nýjustu dómana á blogginu »
Ísland í dag tekur viðtal við Hubert Sandhofer
Vínkynning á Sandhofer vínum á Vínbarnum síðastliðinn þriðjudag gekk vel þrátt fyrir að bloggarinn
hafi gleymt að taka myndavélina úr vasanum eina ferðina enn.
Hellingur af fólki var á staðnum, svo margir að fastagestir áttu erfitt með að komast fyrir en sættu sig vonandi við það hlutskipti að fá ókeypis vínsmakk í staðinn.
Sama dag var viðtal við Hubert Sandhofer í Íslandi í dag, svona glimrandi fínt viðtal.
Kíktu á viðtalið við Hubert Sandhofer í Íslandi í dag »
|