Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 16. apríl 2009

Sendur aðra hvora viku

til 909 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Nýr framleiðandi | Tilkynningaskyldan | Uppskrift dagsins | Verðfréttir | Erlendir dómar

NÝR FRAMLEIÐANDI
Chateau de Montfaucon — Côtes du Rhône

Á vesturbakka Rónarárinnar stendur stór og tignarlegur kastali. Hann hefur staðið vörð og vakað yfir þeim mikilvægu landamærum sem farvegur árinnar hefur mótað allt frá 11. öld.

Kastalinn er sérstakur að því leyti að hann er sá eini sinnar tegundar í Frakklandi sem hefur þríhyrningslaga grunnflöt og er undir sterkum skoskum áhrifum. Ef horft er í suð-austur frá kastalanum blasir við hið fræga víngerðarþorp Chateauneuf de Pape, steinsnar hinum megin við ána.

Í kastalanum búa de Pins hjónin og kettirnir en í litlu húsi neðar í hlíðinni hafa sonur þeirra Rodolphe de Pins og finnsk unnusta hans Mari Hartikainen gert sér hreiður.

Þótt saga víngerðar í Chateau de Montfaucon kastalanum spanni aldirnar þá var það ekki fyrr en Rodolphe tók við lyklunum 1995 að hún komst á flug. Hann aflaði sér reynslu í Ástralíu og Kaliforníu meðal annars og hefur einsett sér að búa til vín sem hann getur stoltur kallað sönn Rónarvín.

Côtes du Rhône 2006 er sannkallað Rónarvín, blandað úr fjórum ólíkum þrúgum, Grenache, Syrah, Carignan og Cinsault. Jafnvægið á milli þeirra virðist fullkomið, áferðin er mjúk og vínið létt á fæti þótt bragðmikið sé.

Fyrir okkur er gott Côtes du Rhône rauðvín líkt og þetta svolítið eins og Chianti Classico vínin frá Ítalíu eru fyrir okkur; vín sem eru hvergi ýkt (hvorki of né van), eru góð matarvín, ekki of dýr, einlæg, jafnvel svolítið sveitaleg og einhvern vegin dæmigerð fyrir landið sem þau koma frá.

Chateau de Montfaucon — Côtes du Rhône 2006 kostar 2.150 kr. og fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Lestu um framleiðandann Chateau de Montefaucon »

TILKYNNINGASKYLDAN
Áskrifendum að Vínpóstinum fjölgar í 900

Það þýðir bara eitt.

Partý!

Nú er að byrja að skipuleggja veisluhöldin. Sól, sumar og grill kemur fljótlega upp í hugann. Vín og tónlist líka og gott fólk.

Meira um það síðar.

Við erum búin að draga út nýjan vinningshafa í póstlistahappdrættinu sem hlýtur að launum vínsmakk fyrir sig og sína og snarl frá La Primavera. það er hún Olga sem hlýtur vinninginn.

Til hamingju Olga!

Nýjar leikreglur:

Við hófum hingað til dregið vinningshafana úr hópi hverra 100 ákskrifenda sem bæst hafa við á póstlistann en nú breytum við til hér eftir og drögum vinningshafann úr öllum hópnum.

Gamlir og traustir áskrifendur sem hafa verið með okkur nánast frá upphafi eiga því líka möguleika á að vinna. Þeir eiga það skilið.

Vínpóstar fyrr og síðar »

UPPSKRIFT DAGSINS
Frönsk lauksúpa

Bloggarinn var kvefaður í vikunni og pantaði franska lauksúpu úr eldhúsinu.

Fátt betra við kvefi en heit og kjarnrík súpa.

Uppistaðan í súpunni er laukur og síðan aðeins meiri laukur.

Leyndarmálið er samt eiginlega ekki laukurinn heldur hitt góðgætið sem fær að fljóta með; soðna eggið, osturinn og brauðsneiðin, en það fer kannski eftir því hvern er verið að spyrja.

Svona súpa gengur vel með bæði hvítvíni og rauðvíni, ekki of flóknu heldur bara svona víni hússins, enda bragðlaukarnir hálflamaðir af hita súpunnar.

Í þetta sinn var það afgangslögg af Chianti frá Querceto sem var drukkið með súpunni.

Uppskriftin af franskri lauksúpu »

VERÐFRÉTTIR
New York — Reykjavík: Romano dal Forno

Ef sú míta að á Íslandi væri hægt að gera góð kaup í dýrari vínum var nokkurn tímann sönn þá er hún sannari nú en nokkru sinni áður.

Þetta á við um þau vín sem keypt voru inn fyrir hrun og fást á gömlu gengi.

Við fengum tölvupóst í síðustu viku frá virtri vínbúð í New York sem fjallaði um rauðvín frá Romano Dal Forno, einum rómaðasta framleiðanda Ítalíu.

Þegar við reiknuðum út skv. genginu sem gilti þann daginn (NB. munurinn hefur aukist síðan þá) þá kom í ljós gríðarlegur verðmunur á þessum vínum í New York annars vegar og Reykjavík hins vegar.

Svona lítur hann út:

Dal Forno Amarone 2002 - NY 50.000 kr., Reykjavík 21.000 kr.
Dal Forno Valpolicella 2003 - NY 18.000 kr., Reykjavík 7.990 kr.

Við eigum 4 flöskur á lager af Amarone 2002 og um 30 flöskur af Valpolicella 2003.

Þeim sem líst illa á verðið á Amarone er bent á að Valpolicella er gjörsamlega magnað vín.

Smelltu hér til að panta Dal Forno í ÁTVR»

ERLENDIR DÓMAR
Tom Cannavan fjallar um Chianti Classico

Við höfum verið eitthvað löt við að fjalla um dóma erlendra gagnrýnenda á okkar vínum undanfarið enda kannski óþarfi að vitna í sífellu í þá skríbenta Robert Parker og félaga.

Þetta þýðir ekki að við séum hætt því, við bara höfum oft öðrum hnöppum að hneppa.

Við rákumst þó á áhugaverða umfjöllun úr aðeins annarri átti en við erum vön að vitna í, Tom Cannavan sem heldur úti vefsíðunni wine-pages.com.

Tom sem er breskur vínspekúlant og rithöfundur fjallar þar nýlega um nokkra góða framleiðendur í Chianti Classico og okkur til ánægju eru fyrstu tveir í röðinni einmitt okkar menn, Fontodi og Castello di Querceto.

Eins og myndin sýnir er Giovanni Manetti, eigandi Fontodi, gríðarlega ánægður með þetta líka.

Fyrir utan umfjöllun um framleiðendur með tilheyrandi einkunnum má líka finna þarna fínan fróðleik um Chianti Classico svæðið.

Chianti Classico umfjöllun á wine-pages.com »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Lambrusco ÁSKORUN !

Keyptu 3 flöskur af Lambrusco frá Lini og í staðinn sendum við þér flösku (250ml) af ekta, eðal Modena balsamik ediki frá sama framleiðanda.

Til að staðfesta kaupin þarftu að senda okkur myndskilaboð (6937165) eða fax (5347175) af kassakvittun. Hún þarf að vera læsileg og nafn og heimilisfang þarf að fylgja með.

Takmarkið er að koma Lambrusco frá Lini í kjarna Vínbúðanna en til þess þurfum við að selja 30 flöskur á viku næstu þrjá mánuði.

Ástæðan er einföld; Lambrusco frá Lini er dæmigert fyrir vínin sem við föllum svo oft mest fyrir, vín sem er ekki endilega augljóst eða í miðju massasölunnar, heldur einstakt út af fyrir sig.

Það hressir, bætir og kætir.

Svo minnum við á að vínið var valið Bestu Kaupin í Gestgjafanum og fékk 91 stig af 100 í Morgunblaðinu sem kallaði það “lítið djásn”.

Fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Meira um LINI »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Útskriftartónleikum í Listaháskólanum

Listaháskólinn er aldrei meira iðandi af lífi en á vorin.

Yfirstandandi eru útskriftartónleikar nemenda í tónlistarkennslu, tónsmíðum, söng og hljóðfæraleik.

"Útskriftartónleikar Listaháskólans eru kjörið tækifæri til að skyggnast inn í framtíð íslensks tónlistarlífs en margir þeirra nemenda sem þar koma fram hafa þegar vakið athygli sem efnilegir listamenn, og stefna ýmist að því að hella sér út í atvinnulífið, eða í framhaldsnám við virtar erlendar stofnanir." eins og segir á vef háskólans.

23. apríl hefst svo hin vinsæla útskriftarsýning nemenda í hönnun, myndlist og arkítektúr. Verk eftir 71 nemenda.

Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum.

Dagsskrá útskriftartónleika LHÍ

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.