Caprai er heitur. Funheitur.
Hann var valinn Vínframleiðandi ársins 2006 á Ítalíu af Gambero Rosso. Lestu bloggið
Arnaldo Caprai heitir framleiðandinn fullu nafni en það er ekki Arnaldo sjálfur sem á heiðurinn af þessari frægð og frama heldur er það sonurinn Marco. Marco (sjá mynd) hefur snúið fyrirtækinu við úr því að framleiða gamaldags sætvín í það að vera eitthvert nútímalegasta og framsæknasta fyrirtæki á sviði víngerðar á Ítalíu.
Það eru nefnilega ekki bara vínin frá Caprai sem eru til fyrirmyndar heldur "erum við að búa til fyrirmyndar fyrirtæki á sviðið vínræktar" eins og Marco orðaði það sjálfur. Allar stöður eru vel mannaðar allt frá markaðsfólki til víngerðarráðgjafa en Attilio Pagli, einhver þekktasti vínráðgjafi og vísindamaður á Ítalíu er fyrirtækinu innan handar með ráðgjöf. Hjá Caprai eru líka mismunandi þrúgur rannsakaðar, mismunandi þéttleiki vínviðar, mismunandi uppsetning vínviðar o.s.frv., o.s.frv. Hvergi hafa eins margar lokaritgerðir í vínfræðum verið unnar eins og af nemendum sem hafa verið í læri hjá Caprai.
En ég ætlaði að tala um hvítvín.
Caprai gerir tvö hvítvín og er annað þeirra Grecante 2005 nú fáanlegt í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni á 1.790 kr. Þetta vín hefur blómlegan ilm með peru, sítrus og daufum sætuvotti af þroskuðum ferskjum. Það er óeikað og ferskt en hefur all þétta vigt og góða byggingu. Það sýnir að styrkur Caprai víngerðarinnar liggur ekki bara í rauðvínunum.
Grecante 2005 hefur unnið sér það til ágætis að vera valið á Business Class vínlista Icelandair (USA flug) þar sem það verður í boði næsta árið.
Þess má líka geta að heimsókn frá Arnaldo Caprai er á döfinni næsta haust.
![]()
Áttu vin sem finnst sérstaklega gott að drekka hvítvín á vorin?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()

Þessi þrjú rauðvín voru að renna í hlaðið frá Ástralíu.
Þau fást ekki í Vínbúðunum en það er hægt að panta þau sérstaklega í gegnum okkur.
Í stuttu máli sagt — Robert Parker elskar þau:
Torbreck The Factor 2004 - 97 stig, verð 7.400 kr.
Torbreck Run Rig 2003 - 99 stig, verð 12.900 kr.
Kay Brothers Block 6 2004 - 98 stig, verð 4.890 kr.
Shiraz babe!
Lestu alla umsögn Parkers um þessi þrjú vín
Svaraðu þessum pósti eða sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@internet.is ef þú vilt tryggja þér það besta sem Ástralía býður upp á í dag. Pöntun þín verður tilbúin í Vínbúðunum viku síðar eða svo.
Afskaplega takmarkað magn.
![]()
Við Rakel skruppum til Ítalíu þann 26. mars og fórum í afmæli til San Michele Appiano.
Hann var 100 ára.
Þaðan fórum við svo á Vinitaly vínsýninguna í Veróna.
Ég er búinn að blogga um fyrstu tvo dagana og hinir munu fylgja í kjölfarið fljótlega:
Dagur 1 - Ljósasjóv undir berum himni
Dagur 2 - Diskóbúlla í Dólómítunum
![]()
Smelltu hér til að skoða myndir úr Ítalíuferðinni á flickr
![]()
Fróðleiksmoli vikunnar er um glös, umhellingar og hitastig.
![]()
Bestu kveðjur,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.