Það er kominn tími á smakkpakka.
Þessi smakkpakki er samsettur af þremur rósavínum sem öll koma frá tiltölulega litlu horni á landakortinu, þ.e.a.s. norðarlega á Spáni og syðst í Frakklandi. Þau eiga það líka sameiginlegt að Grenache þrúgan kemur við sögu í þeim öllum.
Þótt rósavín séu upplögð allt árið í kring eru þau sérstaklega girnileg á sumrin.
Artazuri 2005 (1.300 kr.) er einfalt og frísklegt, Les Capitelles 2004 (1.800 kr.) er mjúkt og létt eikað og Tempier 2004 (2.290 kr.) er þétt og glæsilegt.
Rósavín smakkpakki — 5.390 kr.
Sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is eða svaraðu þessum pósti til að panta smakkpakkann.
Þess má geta að tvö fyrstnefndu vínin hafa verið valin á vínlista veitingastaðarins VOX og nýlega var fjallað lofsamlega um Tempier rósavínið í Wine Spectator (lestu bloggið).
![]()
Áttu vin sem gæti langað í smakkpakka?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Ég var ekki fyrr búinn að fjalla um frábæra dóma sem hvítvínið Grecante fékk í Gestgjafanum þegar að Steingrímur í Morgunblaðinu fjallar sömuleiðis lofsamlega um vínið.
Hann gefur Grecante 2005 91 stig og finnst það m.a. "[a]lgjörlega stórkostlegt matarvín".
Stórkostlegt!
Í sama blaði fær hvítvínið Vitiano 2005, sem honum finnst vera "[e]kta sumarvín", 89 stig.
Fyrir skömmu fengu líka þrjú sikileysk vín mjög fína umfjöllun í Morgunblaðinu. Rauðvínið Santagostino 2003 fær 89 stig og systurvínin Emporio 2006 hvítt og Emporio 2006 rautt fá 87 og 86 stig.
![]()
Hjónin Alessandro og Antonietta sem eru eigendur og einu íbúar Castello di Querceto eru komin og farin.
Heimsóknin lukkaðist mjög vel, ekki síst vínsmakkið sem við héldum saman á La Primavera.
Bestu þakkir til Dominique hjá Vínskólanum fyrir að auglýsa vínsmakkið og til Jónínu og Leifs á La Primavera ásamt starfsfólki þeirra fyrir aðstoðina við smakkið og fyrir að leyfa okkur að halda það í svo góðu og fallegu umhverfi.
![]()
Sumarkveðjur,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.