
St. Valentin Sauvignon Blanc frá San Michele Appiano er hugsanlega besta hvítvín sem við höfum flutt inn hingað til.
Einstaklega vel heppnuð útgáfa af Sauvignon Blanc þrúgunni sem er ræktuð í hlíðum ítölsku Alpanna. Ef bornar eru saman bækur helstu víngagnrýnenda Ítalíu fer ekkert á milli mála að þetta vín er rómaðasta Sauvignon Blanc landsins og eitt hæst metna hvítvín Ítalíu yfir höfuð.
Það hefur verið ófánlegt hins vegar í Vínbúðunum lengi þar til í desember þegar það var valið á svokallaðan sérlista. Sérlistavín eru ekki valin í Vínbúðirnar eftir hálf-sjálfvirku kerfi eins og önnur vín heldur eru þau smökkuð og metin af víngæðingum utan og innan ÁTVR svo Vínbúðirnar geti ávallt boðið upp á slík gæðavín samhliða marglitri flórunni.
Einhverjar flöskur af 2004 árganginum eru enn í hillunum (sá árgangur sem sérlistavalið byggðist á) en í morgun afhenti ég flöskur af brakandi ferskum 2005 árgangi. Báðir árgangar eru mjög góðir.
Án þess að lengja mál mitt mikið frekar þá hvet ég hvern þann sem hefur áhuga á góðum hvítvínum að renna við í Heiðrúnu eða Kringlunni og kippa flösku af St. Valentin Sauvignon Blanc — verð 2.890 kr.
Að hætti Alto Adige búa (Sud Tyrol á þýsku) er allur flöskumiðinn bæði á ítölsku og þýsku og víngerðin því skrifuð St. Michael Eppan jafnt sem San Michele Appiano o.s.frv.
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
St. Valentin Sauvignon Blanc frá San Michele Appiano er eitthvert besta hvítvín Ítalíu ef eitthvað er að marka Gambero Rosso handbókina sem gefin er út af Slow Food samtökunum. Reyndar hafa þeir einu sinni nefnt víngerðina sjálfa "Besta framleiðanda ársins" á Ítalíu.
Bókin kemur út árlega og í hverri einustu útgáfu undanfarin ár fær St. Valentin Sauvignon Blanc hæstu einkunn, svokölluð "þrjú glös" (Tre Bicchieri).
Það er eitt af þeim ítölsku vínum sem oftast hafa fengið Tre Bicchieri.
![]()
Sauvignon blanc þrúgan er grösug segja sumir — en hvað kemur hún köttum við?
![]()
San Michele Appiano — framleiðandi vínsins sem rætt var um hér ofar ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum — er 100 ára í ár!
Ég er ekki búinn að fá að vita hvort það sé einhver ákveðinn dagur, jú líklegast, en við óskum honum samt strax til hamingju með afmælið!
Meira um Appiano og afmælið á blogginu
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.