Vín & matur

Vínpósturinn, 10. maí 2007

Svo "frizzando"!
Ítalskir dagar — tvö vín á tilboði
Dómur um Vitiano í Morgunblaðinu
Jón Lárus bloggar um The Stump Jump

Frizzando frá Sandhofer

Það getur verið erfitt að hemja sig þegar maður flytur inn vín og hefur mikinn áhuga á viðfangsefninu — veröldin er einfaldlega svo margbrotin og spennandi. Þannig hugsa ég meira um breidd og fjölbreytni þegar ég vel vín heldur en að einblína á fáeinar tegundir í miklu magni þótt hið síðara sé eflaust praktískara viðhorf.

Þetta þýðir náttúrulega að með æ fleiri vínum er að verða svolítið erfitt fyrir mig að opna og njóta heima með Rakel sama vínsins með stuttu millibili, hvað þá tvisvar eða oftar í röð.

Það gerðist hins vegar í vikunni þegar ég opnaði flösku af fyrsta víninu okkar frá Austurríki, hinu ofurljúfa hvítvíni Frizzando frá Sandhofer í Austurríki. Mér fannst það svo gott að í næsta skipti á eftir gat ég ekki stillt mig um að ná í flösku af þessu sama víni.

Og ég ætla að opna eina til í kvöld.

Í stuttu máli væri hægt að lýsa Frizzando svona:

Mmmmm...

Í aðeins lengra máli svona:

Frizzando er ekki hefðbundið hvítvín heldur freyðir það talsvert og hefur þann skemmtilega eiginleika að ganga auðveldlega bæði í hlutverk freyðivíns og hvítvíns. Mér er efst í huga hversu ferskt það er og mæli með því að það sé drukkið vel kælt eins og freyðivín. Ilmurinn er fínlegur. Í munni er það þægilegt sem gerir það svo auðdrekkanlegt. Það ertir líka einhvern veginn allar bragðstöðvarnar jafnt sem gerir það að einstaklega fjölhæfu víni sem ég mæli bókstaflega með öllum mat sem hvítvín spanna yfir höfuð. Hinn "freyðandi" eiginleiki á sinn þátt í því að lokka skilningavitin og gera það svona ánægjulegt.

Á auglýsingastofumáli einhvern veginn svona:

Svo ferskt.

Svo frizzando.

Þú finnur Frizzando í hvítvínsrekkanum í Heiðrúnu og Kringlunni á 1.790 kr.


Smelltu til að fara á vefsíðu Sandhofer framleiðandans

Áttu vín sem er gefinn fyrir freyðivín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst

Ítalskir dagar — tvö vín á tilboði

Það standa yfir ítalskir dagar í Vínbúðunum.

Við eigum þar tvö vín með 100 kr. afslætti. Lestu meira

Vitiano hvítvínið sem var að fá svo fína dóma í Morgunblaðinu (sjá hér neðar) kostar nú 1.490 kr. og Chianti frá Querceto á aðeins 1.290 kr.

Öruggast að finna bæði þessi vín í Heiðrúnu eða Kringlunni en þau eru líka í nokkrum búðum til viðbótar.

Dómur um Vitiano í Morgunblaðinu

Lofsamlegur dómur birtist um Vitiano hvítvínið í Morgunblaðinu í síðustu viku.

Steingrími finnst það "einfaldlega yndislegt hvítvín" og gefur 89 stig.

Lestu allan dóminn

Já, það er eitthvað yndislegt við þetta hvítvín.

Jón Lárus bloggar um The Stump Jump

Þetta blogg er ekki hluti af Vínkeðjunni en Jón Lárus var svo ánægður með rauðvínið The Stump Jump að hann sá ástæðu til að fjalla um það á blogginu sínu.

Lestu hvað hann segir um rauðvínið The Stump Jump

Við minnum á að það er líka til The Stump Jump hvítvín.

Njótið heil,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.