Vín & matur

Vínpósturinn, 21. september 2006

Lífræn vín frá Domaine d'Aupilhac
Límmiðarnir okkar
Vínskólinn smakkar Laderas de El Seque

Lífræn vín frá Domaine d'Aupilhac

Sylvain Fadat er einn af þessum víngerðarmönnum sem maður ímyndar sér að gætu hugsanlega verið með vín í æðunum. Ástríðumaður sem einhvern vegin gæti ekki verið að gera neitt annað. Fremstur í flokki hefur hann komið heimabæ sínum Montpeyroux á kortið yfir betri vínræktarsvæði Languedoc héraðsins og víngerðin hans Domaine d'Aupilhac er þekkt fyrir að vera einhver sú áhugaverðasta í héraðinu. Hann er einn af þessum frumkvöðlum sem hafa undanfarin ár verið að setja ný viðmið í Languedoc. Ég sé hann fyrir mér snemma morguns og langt fram á kvöld, inni í vínkjallaranum eða úti á vínekru, að hrófla, þefa, skima, sötra, spekúlera, prófa sig áfram, betrumbæta og sjaldan er brosið langt undan.

Ástríðan og metnaðurinn birtast m.a. í því að vínin eru að öllu leyti lífræn og bíódýnamísk. Lestu um bíódýnamíska víngerð á blogginu.

Við flytjum inn tvö af hans karakterríku rauðvínum.

Lou Maset 2004 (1.600 kr.) hafa vonandi flestir nú þegar smakkað sem keyptu Languedoc smakkpakkann í vor. Þetta er búsældarlegt húsvín, lokkandi og stílhreint, sem er látið þroskast í 12-18 mánuði í stórum eikartunnum svo eikin yfirgnæfi ekki vínið. Montpeyroux 2003 (2.200 kr.) er öllu meira vín, þroskað með ávöxt sem er "þéttur og að því er virðist endalaus í bragðinu" að mati Steingríms vínrýnis hjá Morgunblaðinu (Lestu dóminn). Montpeyroux þroskast 20 mánuði í eikartunnum, stórum sem smáum.

Þau fást í Heiðrúnu og Kringlunni.

Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að áframsenda þennan póst

Límmiðarnir okkar

Fyrstu flöskurnar með litlum, kringlóttum límmiða merktum Víni og mat eru komnar í hillur vínbúðanna. Á nokkrum vikum ættu allar flöskurnar okkar að vera merktar.

Litirnir eru hvítur, svartur og rauður og útgáfurnar eru alls 12 þar sem við leikum okkur með mismunandi letur, uppsetningu og myndefni sem skartar fallegum plöntu- og dýramyndum frá 19. öld.

Svínið er í dálitlu uppáhaldi hjá okkur Rakeli en Grétu, 10 ára dóttur okkar, finnst dádýrið flottast.

Miðarnir 12 eru settir af handahófi á flöskurnar, myndarnir þurfa ekki að hafa tengingu við vínið. Svínið getur þannig birtst á hvaða víni sem er, hvítu eða rauðu, o.s.frv. Límið á miðanum er þannig að það er hægt að fjarlægja hann af flöskunni án ummerkja.

Allir miðarnir birtast á vefsíðunni innan skamms.

Vínskólinn smakkar Laderas de El Seque

Í fréttabréfum Vínskólans fjallar Dominique stundum um áhugaverð vín sem hún hefur smakkað nýlega.

Spænska rauðvínið Laderas de El Seque (1.450 kr.) frá Alicante héraðinu fær umfjöllun í nýjasta fréttabréfinu: "dæmigert fyrir þessi skemmtilegu vínsvæði þar sem heitast er á Spáni - þétt vín líka, bragðmikið en mjúkt og aðlaðandi. Ekki hika við að prófa..."

Á vefsíðu Vínskólans er hægt að skrá sig á vínnámskeið, í ferðir á vínslóðir og á póstlistann.

Njótið heil ,
Arnar


http://www.vinogmatur.is/


Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.

 

Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.