Alessandro og Antonietta, eigendur Castello di Querceto í Chianti Classico í Toskana, koma í heimsókn til Íslands í lok júní.
Við blásum til vínsmökkunar með þeim ljúfu hjónum.
8 tegundir verða smakkaðar: freyðivínið þeirra, hvítvínið Vernaccia di San Gimignano, rauðvínin Chianti, Chianti Classico, Chianti Classico Riserva, Il Sole di Alessandro og Cignale ásamt Vin santo sætvíninu.
Vínin verða sem fyrr borin fram með léttu nasli að hætti Leifs og Jónínu á La Primavera — í anda Toskana héraðsins. Gott ef ekki að það verður Amedei súkkulaði með sætvíninu.
La Primavera, laugardaginn 30. júní kl. 14.00.
Verð: 3.500 kr.
Sendu okkur línu á vinogmatur@vinogmatur.is eða svaraðu þessum pósti til að láta taka frá sæti.
Hlökkum til að sjá þig!
![]()
Áttu vin sem finnst gaman að smakka vín?
Smelltu þá hér til áframsenda honum þennan póst
![]()
Þótt það komi hvergi fram á miðanum er Firriato víngerðin á bak við þessi tvö sikileysku vín sem byrjuðu í Vínbúðunum 1. júní.
Þau bera sama nafnið, Emporio —annað er hvítt og hitt er rautt.
Emporio hvítvínið er úr þrúgunum Inzolia og Grecante og einkennist umfram allt af þroskuðum sítrusávöxtum. Emporio rauðvínið er úr þrúgunum Sangiovese og Nero d'Avola og hefur skemmtilegan keim af jörð í bland við ferskan ávöxtinn.
Þetta eru ekta suður-ítölsk vín, lifandi og all bragðmikil sem hægt er að grípa til með ýmis konar grillmat og einfaldari réttum.
Þau eru heldur ekki svo dýr Emporio vínin.
1.390 kr. í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@vinogmatur.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.