Lífræna rauðvínið Montpeyroux 2003 frá Domaine d'Aupilhac í Languedoc héraðinu í S-Frakklandi er
VÍN MÁNAÐARINS í nýjasta Gestgjafanum. Það fær 4 1/2 glas. Lestu allan dóminn
Það er "opið og margslungið" eins og segir í gagnrýni blaðsins og "með yndislegum ávexti". Þeim finnst það líka "Mjög góð kaup".
Þetta rauðvín er eitt þeirra vína sem við völdum á Hátíðarvínlistann. Pöruðum það með hreindýri enda hefur vínið þessa villtu og sætu kryddtóna sem fara svo vel með villibráðinni fyrir utan að það er all kröftugt og þurrt sem hentar vel hreindýrskjötinu. Við mælum því með eins og Gestgjafinn að njóta vínsins með "villibráð, önd og eiginlega öllu gæðakjöti."
Feitur fiskur og bragðmeiri grænmetisréttir eins og bökur og baunabuff eru líka upplagður matur með þessu gæðavíni. Við erum jú kannski ekki mikið í villibráðinni þessa dagana.
Domaine d'Aupilhac MONTPEYROUX 2003 kostar 2.200 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.
Annað lífrænt rauðvín frá sama framleiðanda Lou Maset 2004 kostar 1.600 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni.
Til að fræðast um lífræn vín bendi ég áhugasömum á að lesa greinina sem Dominique og Eymar skrifa í nýjasta Gestgjafann (bls. 56-9).
![]()
Hjálpaðu okkur að stækka:
Smelltu hér til að
áframsenda þennan póst
![]()
Þótt nýi bloggvefurinn okkar sé á vinnslustigi (eigum eftir að laga útlit, liti, bæta við gömlum færslum, auka tenglasafn o.fl.) þá er ástæða til að minnast á hann núna þar sem að frá og með þessum vínpósti verða allir tenglar á bloggfærslur sóttir þangað fremur en á vefsíðuna okkar.
Bloggvefurinn er settur upp í Wordpress og gerir okkur kleyft að setja upp leitarvél og sitt hvað fleira sem gott bloggumhverfi verður að hafa.
Ennþá er hægt að nálgast allar bloggfærslur á vefsíðunni okkar og að sjálfsögðu verður vínportfólían þar á sínum stað með tilheyrandi upplýsingum um vínin og framleiðendur þeirra.
Við munum láta aftur vita þegar bloggvefurinn er tilbúinn en allar ábendingar þangað til og þar eftir eru vel þegnar með því t.d. að senda línu á vinogmatur@internet.is.
![]()
Annað vín frá Languedoc héraðinu er í sviðsljósinu þessa dagana.
Wine Spectator (febrúarhefti) finnst Chateau du Lascaux 2004 vera "Smart Buy" og gefur því 89 stiga einkunn af 100 sem er virkilega fínn dómur fyrir ekki dýrara vín.
Lestu allan dóminn (og hvernig mér finnst vínið passa með djúpsteiktum smokkfiski)
Chateau de Lascaux 2004 kostar 1.600 kr. í Heiðrúnu og Kringlunni
![]()
Það gleymdist að segja í síðasta vínpósti að útsalan góða mun standa út janúarmánuð, jafnvel eitthvað lengur.
Kíktu á útsöluvínlistann (ath. Cignale er uppselt)
![]()
Njótið heil,
Arnar
Vín & matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Arnari og Rakel og flytur bara inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat. Við viljum gjarnan heyra hvað þér finnst um þennan póst, vínin sem við flytjum inn eða bara hvað sem er. Sendu okkur póst á vinogmatur@internet.is eða hringdu í okkur í síma 693 7165.
Er þetta orðið gott? Það er einfalt að segja upp áskriftinni að Vínpóstinum.