Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 10. júní 2009

Sendur aðra hvora viku

til 937 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Tvíburar í Vínbúðunum | Bændamarkaðurinn | Uppskrift dagsins

TVíBURAR Í VÍNBÚÐUNUM
Little James og Little James

Svona gerist það stundum.

Við að þvælast um netheima í leit að spennandi vínum. Eitthvað kveikir áhuga; kannski flottur miði, kannski lágt verð, kannski frábær umfjöllun einhvers vínspekúlantsins.

Í tilfelli Little James vínanna var það allt þetta þrennt sem vakti áhuga okkar.

Þá var sendur tölvupóstur til framleiðandans, hann sendi okkur sýni, við smökkuðum, við vorum ánægð og badabing badabúmm — vínin eru komin til landsins.

Það reyndar vildi svo skemmtilega til að framleiðandinn á bak við vínin, Chateau Saint Cosme í Rónarhéraði S-Frakklands, var enginn venjulegur vínframleiðandi heldur stjarna á sínu svæði, þekktur fyrir að hífa upp gæði og hróður vínanna frá Gigondas þorpinu.

Hinn ungi Louis Barruol er maðurinn á bak við vínin.

Louis, Louis, Louis!

Louis tók Saint Cosme víngerðina í gegn, stækkaði og fjölgaði vínum. Hann ákvað líka að leyfa sér að stíga aðeins út fyrir rammann og í staðinn fyrir að gera eingöngu vín samkvæmt hefðinni (með dæmigerðum frönskum miðum þar sem kirkja eða kastali er á miðanum - eins og öll hin tuttugu vínin eru) þá hannaði hann tvö vín, rautt og hvítt, skírði þau eftir syni sínum á ensku, og hannaði miða sem voru vægast sagt óhefðbundnir.

En við skulum þó hafa eitt í huga — Little James vínin eru frönsk, frönsk, frönsk, umfram allt.

Little James rauðvínið er úr 100% Grenache þrúgunni, feykilega karaktermikið og gott matarvín sem fangar anda Rónarhéraðsins. 2008 árgangur er í aðalhlutverki en nokkrum eldri árgöngum er blandað saman við eftir solera aðferðinni til að auka karakter enn frekar.

Little James hvítvínið er blanda af Viognier og Sauvigon Blanc og kemur af vínekrum sem Louis plantaði í nágrannahéraðinu Languedoc. Það er ilmríkt og spriklandi. Hér er eingöngu 2008 árgangur í flöskunni.

Bæði vínin hafa þessa suðrænu orku sem gerir þau svo góð með alls konar grillmat og kjarnríkum réttum .

Þau kosta bæði 2.150 kr. og fást í Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Lestu um framleiðandann Saint Cosme »

TVíBURAR Í VÍNBÚÐUNUM
M-ið í „Vín og matur”

Stundum erum við spurð: "Vín og matur — en hvar er allur maturinn?"

Svarið hingað til hefur alltaf verið eitthvað á þann veg að vínin væru í aðalhlutverki enn sem komið er en stundum þvældust með ólífuolíur, hunang, edik og súkkulaði sem við borðum mest allt sjálf.

Það er að breytast.

Við erum búin að leigja húsnæði að Laugalæk 6 við hliðina á 10-11 og opnum þar bændamarkað síðsumars.

Nafnið á verzlunina er komið, það verður tilkynnt í sérstökum pósti sem fer í loftið um leið og hönnun lógós er frágengin.

Við hlökkum endalaust mikið til þessa nýja verkefnis sem við höfum fóstrað með okkur í fleiri ár en hefur nú loksins tekið á sig rétta mynd.

Það verður ánægjulegt að hitta ykkur þar!

Fyrstu myndir komnar á Flickr »

UPPSKRIFT DAGSINS
Sunnudagskjúlli

Kjúlli getur verið hlutlaust hráefni ef ekkert er aðhafst en sé hann kryddaður rétt eða við hann bætt ýmsum góðu meðlæti er hann duglegur að drekka það í sig og bragðast vel eftir því!

Við hendum oft kjúlla í pott og því hráefni og kryddi sem hendi er næst en síðustu helgi tókst svo sérstaklega vel til að ástæða var að festa uppskriftina á prenti.

Uppskriftin er ekki flókin í sjálfu sér þótt sótt hafi verið dýpra í matarkistuna en vanalega; einiber, negull, anís, múskat, steinseljurót o.fl.

Við mælum með Saint Cosme vínunum sem er fjallað er um hér fyrir ofan með þessum rétti, bæði rautt og hvítt ganga vel..

Uppskriftin af Sunnudagskjúlla »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Hjálpaðu okkur að stækka

Senda til vinar
Senda á Facebook

Vínframleiðandi vikunnar

Nýr skammtur af vínum frá Luciano Sandrone fer í Vínbúðirnar í dag.

Þetta eru tvö rauðvín, Dolcetto d'Alba 2007 (2.975 kr.) og Barbera d'Alba 2008 (4.390 kr.).

Ekki láta þér bregða þó þú sjáir eldri árganga slæðast með í hillum Vínbúðanna því einhverjar restar eru ennþá til af þeim.

Luciano Sandrone eru einstakur framleiðandi og vínin eftir því.

Það má sérpanta Barolo Le Vigne 2004 (12.900 kr.) en Cannubi Boschis 2004 (13.500 kr.) er uppselt.

Barolo Le Vigne 2004 fær 96 stig hjá Robert Parker útgáfunni og skipar sér sess þar á meðal bestu Barolo vína sem framleidd eru.

Meira um Luciano Sandrone  »

Ekki bara drekka. Líka smakka.

Vínsmökkun er fyrir alla.

Við förum í fyrirtæki og heimahús og höldum vínsmökkun með tilheyrandi fróðleik. Sendu okkur póst eða hringdu í okkur í síma 693 7165 ef þú hefur áhuga á að skipuleggja vínsmökkun fyrir þig og þína.

Vínsmökkun: ekki bara upp á punt »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Vínpósturinn er handsaumaður af Takk Takk í nýtízku vélum.

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.