Sjáið myndirnar! Ef þær vantar eða ef pósturinn lítur grunsamlega illa út geturðu smellt hér til að lesa hann í vafra
Vín og matur

Vínpósturinn

fimmtudaginn 20. nóvember 2008

Sendur aðra hvora viku
til 732 tryggra áskrifenda

Í þessum Vínpósti: Hvatningarverðlaun Vínþjónasamtakanna 2008, fyrsti vinningshafinn í áskrifendahappdrættinu og Útsölu lokið

Hvatningarverðlaun Vínþjónasamtakanna 2008

Á sunnudaginn síðastliðinn voru Hvatningarverðlaun Vínþjónasamtaka Íslands veitt í annað sinn á Hilton Hótel Nordica.

Verðlaunin eru veitt ,,sem viðurkenning fyrir að stuðla markvisst að vínmenningu á Íslandi, með því að leggja áherslu á vandað úrval af víntegundum á aðgengilegu verði".

Í fyrra hlaut Fríhöfnin verðlaunin en þetta árið fær þau Arnar nokkur Bjarnason og fyrirtækið Vín og matur.

Hananú!

Eruði að tala um okkur?

Við förum eiginlega hjá okkur við þessa rausnarlegu viðurkenningu og þann jákvæða texta sem henni fylgdi (lestu meira á blogginu).

Takk Vínþjónar Íslands fyrir þessi verðlaun. Þau eru okkur svo sannarlega hvatning til að gera enn betur.

Vín og matur er samstarfsverkefni okkar og allra þeirra sem hafa tekið þátt í því sem við erum að gera, með því að fjalla um vínin okkar, með því að lesa Vínpóstinn okkar, með því að setja vínin okkar á vínlistann sinn, með því að spyrja um vínin okkar í Vínbúðunum, með því að njóta þess sem við flytjum inn og með því að senda okkur ábendingar og hvatningu í gegnum árin.

Fréttatilkynningin er á vef freistingar.is »

Fyrsti vinningshafinn í áskrifendahappdrættinu

Fyrsti vinningshafinn í áskrifendahappdrættinu var dreginn út á dögunum.

Hann var dreginn út úr hópi nýrra áskrifenda frá 601 til 700.

Tryggvi Blöndal heitir sá heppni.

Hann var númer 654.

Við Tryggvi erum þegar búnir að skipulegga vínsmökkun í desember og eins og fyrr hefur komið fram býður La Primavera upp á ítalskt fingurfæði með smakkinu.

Nú er gott að vera vinur Tryggva.

Það er okkur mikið ánægjuefni að margir nýir áskrifendur hafa verið að bætast í áskrifendahóp Vínpóstsins undanfarið og verður vonandi ekki langt að bíða þar til næsti vinningshafi (úr hópi áskrifenda frá 701 til 800 verður dreginn út). Sem fyrr hlýtur hann vínsmökkun frá okkur og snarl í boði La Primavera í vinning.

Vínpóstarnir okkar eru allir á vefnum »

Útsölu lokið

Útsalan gekk afskaplega vel. Henni er nú lokið fyrir utan að við eigum ennþá nokkra kassa af Oncle Charles og er hægt að panta þá ennþá á útsöluverðinu (1.044 kr með aukaafslætti) með því að senda pöntun beint á solumenn@vinbudin.is og gefa upp nafn, kennitölu og síma.

Nýja pöntunarfyrirkomulagið okkar virkaði vel þrátt fyrir smá hnökra með afhendingar nokkurra pantana í ákveðnum Vínbúðum þar sem einhver misskilningur olli því að vín úr útsölupöntunum gerðu sér lítið fyrir og fóru upp í hillur Vínbúðanna frekar en beint til þess aðila sem pantaði.

Þessi skrítna leikflétta heyrir vonandi sögunni til en okkur langar til þess að biðja ykkur um að láta okkur vinsamlegast vita ef eitthvað er ekki í lagi — svo við getum breytt og bætt.

5% aukaafslátturinn reyndist ekki fara vel ofan í vélar ÁTVR sem gátu ekki breytt verðum (ýmist með eða án 5% afsláttar) svo ört á sama degi svo við völdum þá leið, ef þið hafið ekki þegar tekið eftir því, að gefa öllum sem pöntuðu útsöluvín þennan 5% afslátt , hvort sem pantað var upp á heila kassa eða ekki. Þetta sáum við ekki fyrir og þurftum því að bregðast svona við. Hvernig útsölu verður háttað í framtíðinni verður að koma í ljós — með tilliti til (ó)sveigjanleika ÁTVR vélarinnar.

Starfsmönnum ÁTVR kunnum við hins vegar bestu þakkir fyrir að hjálpa okkur að halda utan um allar útsölupantanirnar sem gengu yfir á þessum vikum.

Fleiri pöntunarmöguleika er að vænta á næstunni »

Þú þekkir okkur á miðanum

Ef þú sérð þennan miða á flösku í Vínbúðunum ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Lestu meira um hvernig vín við flytjum inn »

Nýtt og nýlegt á blogginu

Allt bloggið »

Við mælum með...

Laugavegur 21 eru höfuðstöðvar Hemma og Valda — afslappað kaffihús sem býður gestum upp á kaffi, öl og vín á góðu verði.

Þú gætir líka endað á að ganga út með sérhannað og innflutt reiðhjól þeirra félaga — nú eða keypt gamlan lampa eða stólinn sem þú sast í.

Hemmi og Valdi

David Attenborough er alveg með þetta. Sjónvarpsefni eins og það gerist best.

Kóbraslöngur, kameljón, gleraugnaglámar, skjaldbökur og allir hinir félagarnir.

Lokaþáttur á RÚV næsta mánudag kl. 20.20.

Sir David á vefnum

Þættinum hefur borist bréf

Sigurjón sendi okkur póst og spurði með hvaða bók við mæltum til að læra meira um hinar ýmsu þrúgur sem vín eru gerð úr.

Okkar svar: Það eru til margar góðar bækur um vín. Við eigum eina bók sem fjallar eingöngu um þrúgur og gerir það bæði á fróðlegan og skemmtilegan hátt að hætti höfundar — 350 ólíkar þrúgur í stafrófsröð frá Albarino til Zinfandel. Bókin heitir Grapes and Wines eftir Oz Clarke.

Þú spyrð, við svörum »

Nokkur orð að lokum

Takk fyrir að fylgjast með því sem við erum að gera.

Ef þú þekkir einhvern sem þú heldur að gæti haft áhuga, er einfalt að áframsenda póstinn. Þú gætir líka bent þeim á að gerast sjálfir áskrifendur.

Ef þú vilt senda okkur ábendingu eða bara láta í þér heyra út af einhverju skaltu endilega senda okkur línu eða bara hringja í síma 693 7165. Við viljum heyra frá þér!

Arnar og Rakel
Vín og matur ehf

Allt er gott sem endar (vel)

Þessi póstur er sendur til [email address suppressed] af því þú skráðir þig á póstlista Víns og matar.
Komið nóg í bili? Smelltu hér til að segja upp áskriftinni.